Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1486552591.03

    Skíði
    ÍÞRG2SK04
    9
    íþróttagrein
    Skíði
    Samþykkt af skóla
    2
    4
    Í áfanganum læra nemendur að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í skíðaíþróttinni. Lögð er áhersla á kennslu tækniatriða fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna. Áfanginn er bóklegur og verklegur
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • tækniþáttum skíðaíþróttarinnar
    • skíðareglum
    • þjálfunaraðferðum
    • kennslufræði
    • skipulagi á þjálfun
    • sögu skíðaíþróttarinnar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • útbúa tímaseðla
    • eiga samskipti við iðkendur og alla þá sem koma að íþróttagreinni
    • framkvæma grunnæfingar í skíðaíþróttinni
    • þjálfa skíði
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta þjálfað og leiðbeint börnum á skíðum
    • geta búið til þjálfunaráætlanir
    Getur farið fram með margvíslegum hætti meðal annars með verklegum prófum, skriflegum lokaprófum og verkefnavinnu. Einnig má meta mætingu og virkni nemenda til einkunnar