Í áfanganum kynnast nemendur nokkrum undirstöðugreinum handmennta. Nemendur læra að nota áhöld og tæki í greininni. Nemendur vinna prufur meðan þeir eru að ná valdi á grunnþáttunum í aðferðum og síðan nýta þeir sér þekkingu sína í eigin útfærslur og hönnun. Nemendur þurfa að temja sér vönduð og sjálfstæð vinnubrögð. Áhersla á prjón og hekl. Til viðbótar má velja útsaum, leðurvinnslu og/eða bútasaum
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnatriðum í völdu handverki, t.d. prjóni, hekli, bútasaumi og útsaumi í vél og í höndum
frágangi á verkefnum
a.m.k. þrenns konar handverksaðferðum sem þekktar eru í heimi handverks og hönnunar í nútímanum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota grunnaðferðir í ýmsum handverksaðferðum
nýta sér mismunandi hráefni í vinnslu nytjahluta eða myndverks
búa til vinnulýsingu af eigin hönnun og handverki
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leita nýrra hugmynda til að iðka handmenntir
geta yfirfært hugmynd sína í unninn hlut
útfæra verkefni eftir vinnulýsingu
vanda frágang og vinnubrögð
Mæting og virkni í tímum. Eigin hönnun og framsetning verkefna er metin eftir umfangi, erfiðleikastigi, vandvirkni og góðum vinnubrögðum