Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1486996730.22

    Knattspyrna
    ÍÞRG2KN04
    7
    íþróttagrein
    knattspyrna
    Samþykkt af skóla
    2
    4
    Í áfanganum læra nemendur að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í knattspyrnu. Lögð er áhersla á kennslu knatttækni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og mikilvægi þess að leikurinn sé greindur í sundur í smáar einingar, leikæfingar. Áfanginn er bóklegur og verklegur.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • tækniþáttum knattspyrnum
    • leikfræði
    • leikreglum
    • þjálfunaraðferðum
    • kennslufræði
    • skipulagi á þjálfun
    • sögu knattspyrnunnar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • útbúa tímaseðla
    • framkvæma grunnæfingar í knattspyrnu
    • eiga samskipti við iðkendur og alla þá sem koma að íþróttagreininni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • dæma knattspyrnu
    • geta þjálfað og leiðbeint börnum í knattspyrnu
    • geta útbúið þjálfunaráætlanir
    Getur farið fram með margvíslegum hætti meðal annars með verklegum prófum, skriflegum lokaprófum og verkefnavinnu. Einnig má meta mætingu og virkni nemenda til einkunnar.