Farið yfir vinnu við að skipta um ýmsa hluti og einingar í ökutækjum sem ekki er fjallað um í öðrum áföngum. Skoðaðar vinnuaðferðir við að taka úr og setja í aftur hluta ökutækja svo sem hreyfla, kæla, mælaborð, miðstöðvar, sæti og innréttingar. Skipti á lausum yfirbyggingahlutum. Skoðað fyrirkomulag mælaborða, kveikilása og ræsihindrana. Æfingar í viðgerðum á stillanlegum baksýnisspeglum, þurrkubúnaði, hurðum og búnaði þeirra.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi byggingarlagi og gerð ökutækja
kröfum til ástands ökutækja í reglugerð um gerð og búnað ökutækja
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
finna viðgerðalýsingar í handbókum og rafrænum viðgerðargögnum
lýsa virkni eftirfarandi búnaðar: samlæsinga, rafknúinna rúðuvinda, þjófafæla, rafhitaðra rúða og útispegla, rafstilltra útispegla, mæla og gaumljósa, mælaborðslýsingar, innilýsingar, ræsihindrunar í sjálfskiptingu og öðrum ræsihindrunum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka úr og setja í aftur ýmsan vélbúnað, aukabúnað og innréttingar
skipta um og gera við þurrkubúnað, rúðuvindur, skrár og lamir hurða
skipta um hurðir og lok, svo sem vélarhlíf og lok á farangursgeymslu
Verklegt mat; nemandinn lýsir hvernig standa skuli að verki við að skipta um eða taka ýmsa íhluti eða stærri einingar s.s. hreyfla eða gírkassa úr ökutækjum. Hann sýnir að hann geti gert við ýmsa íhluti eða kerfi í yfirbyggingum og fylgihlutum í ökutækjum. Skriflegt mat; nemandinn leysir próf um fræðilegt efni áfangans.