Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1487429312.13

    Rafeindatækni í bifvélavirkjun
    BVRT2RB01
    2
    Rafeindatækni í bifvélavirkun
    Rafeindatækni í bifvélavirkjun
    Samþykkt af skóla
    2
    1
    Farið yfir gerð rása, íhluti (hálfleiðara, viðnám, þétta, spólur) og virkni þeirra. Farið yfir raftæki ökutækja sem starfa á einhvern hátt með púlsandi straumi. Skoðað samspil þeirra gilda sem skipta máli varðandi gerð straum- og spennupúlsa og tímastillinga. Gerðir útreikningar og æfingar í meðferð sveiflusjár. Áhersla á að nemendur kunni nægileg skil á undirstöðu rafmagnsfræðinnar til að geta unnið með íhluti og tæki.
    BRA102, BRA201
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • undirstöðuatriðum rafmagnsfræðinnar
    • nöfnum og virkni algengra íhluta í rafeindarásum
    • raftækjum ökutækja sem starfa á einhvern hátt með púlsandi straumi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • reikna helstu gildi í tímastilltum rásum
    • tengja sveiflusjá við rás og sýna púlsa rásarinnar
    • nota sveiflusjá við skoðun einfaldra rafeindarása
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • lýsa virkni tímastilltra rása (RL- og RC-rásir) og hugtökum sem gilda um púlsa í rafrásum
    Verklegt mat; nemandinn nefnir og lýsir gerð og virkni íhluta í rafeindarásum. Nemandinn sýnir að hann getur notað viðeigandi prófunar- og mælitæki til skoðunar og prófunar rafeindarása. Skriflegt mat; nemandinn leysir próf um fræðilega þætti áfangans.