Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1487431013.61

    Rafmagn í bíliðngreinum - rafsegulfræði
    BRAF3RS03
    13
    Rafmagn í bíliðngreinum
    rafmagn, rafsegulfræði
    Samþykkt af skóla
    3
    3
    Farið er yfir grunnreglu rafsegulfræða. Kynnt er hægrihandarregla (rafalaregla) um stefnu straums þegar leiðari hreyfist í segulsviði og vinstrihandarregla (rafhreyflaregla) um stefnu krafts á straumfara leiðara í segulsviði. Gerðar tilraunir og æfingar með rafsegulbúnað, segulspólur, rafala og rafhreyfla á æfingarhlutum. Upprifjun í notkun fjölsviðsmæla. Skoðaðir rafbúnaðarhlutir sem vinna með segulkrafti svo sem smærri rafhreyfla, rafaflliða, rafhreyfa og orkunotkun þeirra. Farið yfir aðferðir til að prófa og meta ástand rafgeyma, hleðslu rafgeyma og meðferð þeirra. Áhersla á meðferð mæli- og prófunartækja og hættur samfara umgengni um rafbúnað.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • samhengi rafmagns og segulsviðs
    • helstu gerðum rafhreyfla, rafala og segulvirkra íhluta í rafbúnaði ökutækja
    • virkni ræsis og ræsibúnað í ökutækjum
    • muninum á helstu gerðir rafhreyfla í ökutækjum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota mæli- og prófunartæki, þ.á m. fjölsviðsmæla og sveiflusjá
    • prófa og meta ástand rafgeyma og sjá um hleðslu þeirra og umhirðu
    • prófa ræsikerfi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • lýsa grunnreglu um rafhreyfla og rafala
    • lýsa virkni rafhreyfla og rafala
    • lýsa virkni ræsa
    • lýsa mælingum og reikna orkuþörf rafhreyfla
    Verklegt mat; nemandinn lýsir sambandi segulsviðs og rafmagns. Hann lýsir grunnreglu rafhreyfla og rafala. Nemandinn sýnir að hann getur notað viðeigandi prófunar- og mælitæki til prófunar segulvirkra tækja. Hann sýnir hvernig staðið er að prófun rafgeyma og hleðslu þeirra. Skriflegt mat; nemandinn gerir tiltekin verkefni um segulfræði og leysir próf um fræðilega þætti áfangans.