Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1487431826.23

    Aflrás - sjálfskipting, vökvakerfi
    BVAF3SV01
    7
    Aflrás - grunnur
    Aflrás, sjálfskipting, vökvakerfi
    Samþykkt af skóla
    3
    1
    Farið er yfir gerð og virkni sjálfvirkra gírkassa og íhluta þeirra. Farið er í grunnreglur og útreikninga á afli, vægi, afköstum. Fjallað er um reglubundið viðhald, ástandsskoðun og prófanir og mat á ástandi íhluta. Farið yfir vökvakerfisolíur og síur, vökvaleiðslur og tengi fyrir sjálfvirka gírkassa og almenn vökvakerfi. Þá er fjallað um hættur þegar unnið er undir ökutæki, meðhöndlun þungra hluta og skaðsemi olíu. Sérstök áhersla er lögð á hreinlæti og nákvæmni í vinnu við vökvakerfi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • drifbúnaði ýmissa bifreiða með sjálfvirkan gírkassa
    • grunnreglum og útreikning á afli, vægi, afköstum, nýtingu, þrýstingi
    • ferli afls frá vökvagír í sjálfskiptingu til hjóla ökutækis
    • íhlutum í sjálfvirkum gírkössum og hlutverk þeirra
    • uppbyggingu tengsla í sjálfvirkum gírkassa
    • olíum sem notaðar eru á sjálfvirka gírkassa og mikilvægi notkunar réttrar olíu
    • þrýstiventlum, stjórn- og skiptiventlum í sjálfvirkum gírkössum
    • þrýstiventlum, stjórn- og skiptiventlum í vökvakerfum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • sinna reglubundnu viðhaldi og að gera viðeigandi prófanir á sjálfvirkum gírkössum
    • taka sjálfvirkan gírkassa úr ökutæki og setja í aftur
    • taka í sundur og setja saman sjálfvirkan gírkassa
    • þrýstimæla vökvakerfi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • lýsa virkni algengra sjálfvirkra gírkassa
    • lýsa plánetugírasamstæðu
    • reikna gírhlutföll
    • lýsa virkni ventlahúss
    • lýsa mikilvægi olíuskipta og reglulegrar þjónustu við sjálfvirka gírkassa
    • lýsa algengum í vökvakerfum sem m.a. eru í lyftibúnaði
    Verklegt mat; nemandinn sýnir þekkingu sína og hæfni með því að finna tækniupplýsingar, lýsa ástandi og ástæðum bilana. Bendir á og lýsir einstökum íhlutum og samstæðum. Greinir á milli mismunandi gerða sjálfskiptinga. Skriflegt mat; nemandinn leysir próf sem fjallar um viðfangsefni áfangans, sérstaklega túlkun tæknilýsinga og útreikningum m.a. á vökvakrafti og reikning drifhlutfalla.