Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1490106749.74

    Einfaldari málmsmíðaaðferðir
    MLSM1GR03(SB)
    3
    Málmsmíði
    Mámsmíði-grunnáfangi
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    SB
    Nemendum eru kennt að nota handverkfæri og einföldustu tæki til smíða og viðhalds vélbúnaðar. Nemendur geti lesið á algengustu mælitæki og lesið einföldustu vinnuteikningar og unnið eftir þeim. Vinnsluaðferðir eru sögun, sverfun, borun, snittun, beygingar, slípun og vélavinna. Farið verður yfir notkunarsvið, meðhöndlun og umhirðu tækja og verkfæra. Samhliða fer fram fræðsla um slysahættu og öryggisþætti
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • notkunarmöguleikum verkfæra og tækja og hverju þeirra skal beitt hverju sinni
    • mælingum og geta yfirfært þær á vinnslustykki og notfært sér viðeigandi verkfæri til smíða
    • nemandinn þekki hættur sem geta skapast við ranga meðhöndlun verkfæra og tækja
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa út úr teikningu
    • smíða einfalda hluti
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • smíðað hluti úr mismunandi málmum með ýmsum aðferðum
    • beitt verkfærum og tækjum þeim sem lagt er til í þessum áfanga
    • vinna sjálfstætt með einfaldari verkfærum og tækjum og nýtt sér þau á réttan hátt
    • þekki hvað beri að varast varðandi öryggisþætti
    Námsmat fer fram með fjölbreyttum hætti. Meðal annars eru verkefni, hæfni, vinnubrögð og virkni nemenda metin