Í áfanganum læra nemendur að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði handknattleiks. Lögð er áhersla á kennslu knatttækni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundavallarfærni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barana og mikilvægi þess að leikurinn sé greindur í sundur í smáar einingar, leikæfingar. Áfanginn er bóklegur og verklegur.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
tækniþáttum handbolta
leikfræði
leikreglum
þjálfunaraðferðum
kennslufræði
skipulagi á þjálfun
sögu handknattleiks
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
framkvæma grunnæfingar í handknattleik
þjálfa handknattleik
eiga samskipti við iðkendur og alla þá sem koma að íþróttagreininni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta þjálfað og leiðbeint börnum í handknattleik
geta útbúið þjálfunaráætlanir
dæma handknattleik
Getur farið fram með margvíslegum hætti meðal annars með verklegum prófum, skriflegum lokaprófum, verkefnavinnu. Einnig má meta mætingu og virkni nemenda til einkunnar.