Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1490523585.12

    Samvinna og samskipti
    SAMS1SV04
    4
    Samskipti og þjónusta
    Samskipti, verkstjón
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    FT
    Í áfanganum er fjallað um mikilvægi færni í samskiptum í fjölmenningasamfélagi. Nemendur verði meðvitaðir um áhrif framkomu sinnar á umhverfi og fólk af ólíkum uppruna. Þeir hljóta þjálfun í aðferðum til að efla með sér þá þætti sem stuðla að uppbyggilegum persónulegum og faglegum samskiptum og verkstjórn. Farið er yfir gildi og eðli samskipta og nemendur læra grunnatriði í samtalstækni.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu þáttum sem hafa áhrif á framkomu fólks.
    • gildi fordómalausra og skýrra samskipta.
    • leiðum til lausnarmiðaðra samskipta við þá sem hann verkstýrir og samstarfsaðila.
    • leiðum til að efla styrk sinn og takast á við ábyrgðarhlutverk og verkefnastjórn.
    • mætti hvatningar og fjölbreyttra leiða til að hrósa.
    • gildi uppbyggilegrar gagnrýni, bæði sem viðtakandi og veitandi.
    • mikilvægi ólíkrar nálgunar í samskiptum við einstaklinga með mismunandi venjur fólks af ólíkum uppruna
    • gildi lausnamiðaðra samskipta og mikilvægi sveigjanleika, virðingar og aðlögunarhæfni í starfi.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa í helstu þætti sem hafa áhrif á framkomu fólks.
    • sýna fram á gildi fordómalausra og skýrra samskipta.
    • velja aðferðir til að efla styrk sinn og hafi öðlast áræðni til að takast á við ábyrgðarhlutverk og verkefnastjórn.
    • nota hvatningu og fjölbreyttar leiðir til að hrósa.
    • nýta uppbyggilega gagnrýni, bæði sem viðtakandi og veitandi.
    • sýna fram á gildi lausnamiðaðra samskipta og mikilvægi sveigjanleika, virðingar og aðlögunarhæfni í starfi.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • hafa jákvæð áhrif á framkomu fólks sem metið er með verklegum æfingum og umræðum.
    • sýna fram á gildi fordómalausra og skýrra samskipta sem metið er með skriflegum verkefnum og verklegum æfingum.
    • eiga lausnarmiðuð samskipti við þá sem hann veitir þjónustu og við samstarfsaðila sína sem metið er með munnlegu prófi.
    • takast á við ábyrgðarhlutverk og verkefnastjórn sem er metið með verklegum æfingum og jafningjamati.
    • nota fjölbreyttar leiðir til að hrósa og hvetja fólk markvisst og uppbyggilega sem er metið með verklegum æfingum.
    • beita uppbyggilegri gagnrýni á vettvangi vinnu sinnar sem metið er með skriflegum og verklegum verkefnum.
    Verkefnamiðað nám og stuttir fyrirlestrar. Hópavinna þar sem nemendur hljóta markvissa þjálfun í samvinnu og framkomu. Nemendur kynna verkefni sín og niðurstöður. Munnleg próf. Leiðsagnarmat notað til grundvallar einkunnagjafar, kennsla og námsmat samofin.