Vinnustaðanám á Fisktæknibraut er samkvæmt ferilbók hverrar greinar. Við skipulag og framkvæmd er tekið mið af reglugerð 840/2011 um vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað. Tilsjónarmenn sjá um að skrá námsframvindu og árangur.
Umsjónarmaður vinnustaðanáms í skóla, tilsjónarmaður og nemandi hafa regluleg samskipti um skipulag, framvindu og árangur námsins. Í vinnustaðanámi er sérstaklega gætt ákvæða vinnuverndalaga og reglugerða um vinnu barna og unglinga. Skipulagning vinnustaðanáms tekur tillit til öryggis, andlegs og líkamlegs heilbrigðis nemenda.
Tilgangur vinnustaða námsins er að nemandi kynnist:
minni vinnuvélum. Standist nemendur próf að loknu frumnámskeiði geta þeir hafið verklega þjálfun hjá atvinnurekenda í stjórn og meðferð vinnuvéla. Verkleg þjálfun skal vera a.m.k 16 stundir á hvern flokk véla sem menn ætla að fá réttindi fyrir. Verkþjálfun skal fara fram undir leiðsögn leiðbeinanda sem hefur réttindi til kennslu og þar sem ekki er margt fólk eða slysahætta
helstu suðuaðferðum: rafsuðu, MIG, pinnasuðu, MAG og TIG. Fjallað er um rafsuðutæki, aðföng go meðhöndlun þeirra ásamt öruggri meðhöndlun tækja. Skilgreinar eru góðar suður og ófullnægjandi suður í ljósi notkunar og aðstæðna.
Nemendur sækja námskeið hjá Sæbjörgu, Slysavaraskóla sjómanna (grunnnámskeið),sem eru skylda fyrir alla sjómenn. Fjallað er um öryggisbúnað, verklag við björgun og skyndihjálp. Námskeiðið eru haldið í kennsluskipinu Sæbjörgu.
SAMS1SV04 og FIST1AF06
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
réttindum sem frumnámskeið fyrir minni vinnuvélar veitir
vinnuvernd og öryggisbúnað minni vinnuvéla
vélfræði og vökvafræði minni vinnuvéla
rafgeymum fyrir minni vinnuvélar
vinnu á lyftara með 10 tonna lyftigetu
vinnu á dráttarvélum með tækjabúnaði og minni gerðir jarðvinnuvéla (4t og undir)
vinnu á körfukrana, steypudælur, körfukrana, valtara og útlagningarvélum fyrir bundið slitlag
vinnu á hleðslukrana á ökutækjum með allt að 18t lyftigetu
kröfum til skriflegs prófs á vegum Vinnueftirlits
kröfum um starfsþjálfun undir stjórn leiðbeinanda að bóklegu námskeiði loknu
framkvæmd verklegs prófs hjá vinnueftirlitinu
öllum hlutum suðubyssu og leiðara fyrir MIG/MAG og TIG-suður. Virkni suðutækja, drifbúnaður og pólun
flokkun, meðferð og geymslu suðuvírs
gastegundum og gasblöndum sem notaðar eru við hlífðargassuðu á stáli, ári og ryðfríu stáli. Hlutverki hlífðargasins og réttum stillingum
öryggisbúnaði og öryggisáætlunum um borð í skipum. Gerð og uppsetning hættumats. Notkun persónuhlífa og varna.
neyðaráætlunum. Viðbrögðum við óhöppum, slysum og neyðarástandi um borð í skipum og á hafi úti, þ.m.t. mengunarslysum
staðsetningu og notkun handslökkvitækja. Staðsetningu og notkun reykköfunartækja. Slökkviaðgerðum og aðferðum um borð í skipi
nýta færar leiðir til úrbóta á framkvæmd vinnustaðakennslu ef svo ber undir
skipulagi vinnumarkaðar, félögum atvinnurekenda og launamanna. Hlutverki trúnaðarmanna á vinnustað.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
setja út gúmmíbjörgunarbát og lífbát með öruggum hætti.
bjarga manni sem fallið hefur fyrir borð
undirbúa og standa að hífingu frá þilfari um borð í þyrlu
kanna öryggisbúnað vinnuvélar í hvert sinn sem hún er gangsett
nota ævinlega viðhlítandi persónuhlífar við notkun vinnuvéla
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
fara eftir neyðaráætlunum.
tilkynna neyðarástand til Vaktstöðvar siglinga á yfirvegaðan og skýran hátt.
greina ábyrgð sína sem stjórnandi vinnuvéla
bera virðingu fyrir þeim verðmætum sem honum er treyst fyrir