Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1490802042.08

    Rökrásir 1
    RÖKR2AA03
    2
    Rökrásir
    Rökrásir 1
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    Nemendur öðlast undirstöðuþekkingu í gerð rökrása sem margar gerðir stjórnbúnaðar og eftirlitsbúnaðar grundvallast á. Nemendur fá þjálfun í hönnun og greiningu á einföldum rökrásum og tengingum þeirra ásamt því að setja saman og tengja rökrásahlið fyrir ákveðna virkni, skrifa formúlu samsettu rásarinnar og prófa virkni hennar. Nemendur fá einnig þjálfun í að skrifa formúlu rökrásavirkni og einfalda hana með hjálp Boole-algebru. Nemendur öðlast, með hjálp iðntölvu, þekkingu og skilning á hvernig hægt er að byggja upp ákveðna rökrásavirkni í þeim. Nemendur kynnast hugtökunum forrit (program), stigarit (ladder) og rim (network) og fá þjálfun í að setja upp einfalda stýringu í tölvunni og þjálfun í að tengja búnað við inn- og útganga iðntölvunnar.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • rökrásahliðunum, OR, AND, NOT, NOR og NAND og geti útskýrt þau með rofahliðstæðunni, sett upp sannleikatöflu þeirra og Boole-formúlur
    • mismunandi talnakerfum, einkum tvítölukerfi, oktan og hexadesimal og geti borið þau saman við tugakerfið
    • samrásum (IC-circuit) með rökrásahliðum (C-MOS eða TTL) og fái þjálfun í að tengja þau og prófa
    • smástýrivélum (easy, zelio, logo og sambærilegt), notkun, forritun og tengingar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • smástýrivélum (easy, zelio, logo og sambærilegt), notkun, forritun og tengingar
    • þekkja notkun smástýrivéla, inn- og útganga
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • finna bilanir í rökrásum
    • geta tengt búnað við inn og útganga stýrivélar
    • geta fundið bilanir í kerfum sem stjórnað er af smástýrivél
    • geta útbúið einföld forrit fyrir smástýrivélar
    Námsmat er bæði verklegt og bóklegt. Námsmat fylgir þeim reglum sem kveðið er á um í gæðahandbók skóla.