Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1490811426.99

    Lestur, menning og tjáning
    DANS2TL05(21)
    23
    danska
    lestur og menning, tjáning
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    21
    Markmið áfangans er að nemendur geti notað dönsku til samskipta við Dani og aðra Norðurlandabúa og geti lesið margvíslega danska texta sér til gagns. Nemendur æfa jöfnum höndum hlustun, tal, lestur og ritun. Læsi er þjálfað með því að lesa fjölbreytta texta, ýmist prentaða eða af veraldarvefnum. Þá þjálfast nemendur í að hlusta á talað mál af ýmsum miðlum. Nemendur fá æfingu í að tjá sig á dönsku, skriflega og munnlega. Lögð er áhersla á að efla samvinnu nemenda og þjálfa þá í að meta eigin framfarir. Nemendum gefst kostur á að sýna hæfni sína með fjölbreyttum verkefnaskilum.
    DANS2LO05(11)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • dönsku máli og danskri menningu
    • helstu einkennum danskrar tungu í framburði og rituðu máli
    • skyldleika Norðurlandamálanna
    • orðaforða til undirbúnings náms á háskólastigi
    • mismunandi bókmenntatextum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • hlusta á danskt mál og skilja meginatriði, t.d. í fréttum og í leiknu efni
    • lesa sér til gagns texta um margvísleg málefni
    • tjá hugsanir sínar á dönsku, skriflega og munnlega
    • nota helstu hjálpargögn, orðabækur, þýðingarvélar, uppsláttarrit og kennsluforrit.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja megininntak talaðs máls í samtölum og í fjölmiðlum ...sem er metið með... margvíslegum verkefnum og hlustunaræfingum
    • skilja inntak ritmáls um almennt og sérhæft efni sem hann þekkir til eða hefur áhuga á og geta lesið og skilið bókmenntatexta ...sem er metið með... ýmiss konar verkefnum og/eða prófum
    • tjá sig um almenn málefni á skiljanlegri dönsku, bæði munnlega og skriflega ...sem er metið með... munnlegum og skriflegum verkefnum
    • skrifa læsilega texta um margvíslegt efni þar sem hugmyndaflug getur fengið að njóta sín og þeim rithefðum sem við eiga hverju sinni er fylgt ...sem er metið með... ritunarverkefnum.
    Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati sem felst í því að nemandinn fái með skipulegum og reglulegum hætti upplýsingar frá kennara um hvernig hann stendur í náminu. Matið byggist á ýmiss konar verkefnum (bæði munnlegum og skriflegum, einstaklings- og hópverkefnum), hlustunaræfingum, munnlegum og skriflegum prófum, verklagi nemenda og frammistöðu nemenda í kennslustundum.