Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1492514867.0

    Eðlisfræði
    BEÐL2EB03
    4
    Eðlisfræði
    Eðlisfræði bíliðngreina
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    Í áfanganum er lagður grunnur að þekkingu nemenda á eðlisfræðilegum lögmálum í tengslum við sérnám þeirra í bíliðngreinum. Fjallað er um hin þrjú lögmál Newtons, tregðu, kraft og heildarkraft. Fjallað er um þverkraft, núningskraft og núningsstuðul, massa og þyngd, vinnu, afl, hreyfiorku, stöðuorku, varðveislu orkunnar, varma, nýtni véla og jafngildi massa og orku. Ennfremur er farið í þrýsting í vökva og lofti samkvæmt reglu Pascals og uppdrif samkvæmt lögmáli Arkimedesar.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • SI einingakerfinu og afleiddum stærðum þess
    • fyrsta, öðru og þriðja lögmáli Newtons
    • reglu Pascals um þrýsting í vökva
    • lögmáli Arkimedesar um uppdrif
    • helstu orkuformum og breytingu eins orkuforms í annað
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • leysa verkefni um varðveislu orkunnar m.a. um breytingu stöðuorku í hreyfiorku og hreyfiorku í varma
    • reikna nýtni vélar út frá gefnum forsendum
    • nota reglu Pascals og lögmál um þrýsting í vökva til að útskýra hvernig loftvogir og vökvalyftur vinna og geti reiknað út einföld dæmi um þrýsting í vökva
    • nota lögmál Arkimedesar til að reikna út uppdrif hluta
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • teikna og reikna út kraftamyndir á skáfleti
    • reikna núningskraft út frá núningsstuðli
    • útskýra mismuninn á massa hlutar og þyngd hans
    Verklegt mat; nemandinn sýnir þekkingu sína og hæfni með því að lýsa SI kerfinu, lögmáli Newtons og Arkimedesar og reglu Pascals með því að tiltaka og sýna dæmi. Skriflegt mat; nemandinn leysir próf þar sem reiknaðar eru stærðir varðandi massa og þyngd, vinnu, afl, hreyfiorku, stöðuorku, varðveislu orkunnar, varma, nýtni véla og þrýsting í vökva og lofti.