Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1492525500.13

    Ýmis búnaður
    BVÝB1BB01
    1
    Ýmis búnaður
    Búnaður bifreiða
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    Farið yfir vinnu við að skipta um ýmsa hluti og einingar í ökutækjum sem ekki er fjallað um í öðrum áföngum. Skoðaðar vinnuaðferðir við að taka úr og setja í aftur hluta ökutækja svo sem hreyfla, kæla, mælaborð, miðstöðvar, sæti og innréttingar. Skipti á lausum yfirbyggingahlutum. Skoðað fyrirkomulag mælaborða, kveikilása og ræsihindrana. Æfingar í viðgerðum á stillanlegum baksýnisspeglum, þurrkubúnaði, hurðum og búnaði þeirra.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mismunandi byggingarlagi og gerð ökutækja
    • kröfum til ástands ökutækja í reglugerð um gerð og búnað ökutækja
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • finna viðgerðalýsingar í handbókum og rafrænum viðgerðargögnum
    • lýsa virkni eftirfarandi búnaðar: samlæsinga, rafknúinna rúðuvinda, þjófafæla, rafhitaðra rúða og útispegla, rafstilltra útispegla, mæla og gaumljósa, mælaborðslýsingar, innilýsingar, ræsihindrunar í sjálfskiptingu og öðrum ræsihindrunum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • taka úr og setja í aftur ýmsan vélbúnað, aukabúnað og innréttingar
    • skipta um og gera við þurrkubúnað, rúðuvindur, skrár og lamir hurða
    • skipta um hurðir og lok, svo sem vélarhlíf og lok á farangursgeymslu
    Verklegt mat; nemandinn lýsir hvernig standa skuli að verki við að skipta um eða taka ýmsa íhluti eða stærri einingar s.s. hreyfla eða gírkassa úr ökutækjum. Hann sýnir að hann geti gert við ýmsa íhluti eða kerfi í yfirbyggingum og fylgihlutum í ökutækjum. Skriflegt mat; nemandinn leysir próf um fræðilegt efni áfangans.