Nemendur útfæra verkefni sem fyrir er lagt, gera um það verk- og efnisáætlun og framkvæma í samræmi við hana. Áhersla á að nemendur sýni vandvirkni, skipuleg vinnubrögð og góða umgegni. Einnig að þeir geri sér grein fyrir að tímamörk verkefna eru mikilvæg þegar komið er út á hinn almenna vinnumarkað. Þess er gætt að farið sé eftir fyrirmælum framleiðenda um notkun efna og tækja.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
reglum um vandvirkni, skipuleg vinnubrögð og góða umgegni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
framkvæma verkefni er krefjast þekkingar og færni í samræmi við verkáætlun lokaverkefnis
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
fylgja fyrirmælum, er tilgreind eru í verklýsingu verkefnis, ásamt því að fylgja leiðbeiningum framleiðenda um notkun efna og persónuvarnir