Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1492788873.86

    Spraututækni - grunnur
    BMSP2MU03
    4
    Spraututækni - grunnur
    Meðferð og umhirða
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    Gerðar einfaldar æfingar í meðferð og umhirðu þeirra tækja og tæknibúnaðar sem notaður er við undirvinnu og sprautumálun. Kennt hvernig meta skuli og með hverju heppilegast sé að framkvæma tiltekið vinnuferli. Áhersla á að nemendur fylgi gildandi umgengnis- og öryggisreglum og fari eftir fyrirmælum framleiðenda um notkun efna og tækja.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu verkfærum og tæknibúnaði sem beita þarf til viðhalds og viðgerða á máluðu yfirborði ökutækja
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota tæki við sprautumálun
    • fara eftir umgengnis- og öryggisreglum við meðferð efna og tækja.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • velja þann tækja- og tæknibúnað sem við á hverju sinni og sýni að hann kunni þær aðferðir sem beita þarf miðað við efni og endanlega áferð.
    Skirflegt mat 40%. Verklegt mat 40%. Ástundun 20%.