Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1493821024.35

    Heilsuefling
    HEIL1HH02(AV)
    17
    heilsa, lífsstíll
    heilbrigði, hreyfing
    í vinnslu
    1
    2
    Í áfanganum er leitast við að hvetja nemandann til heilbrigðari lífshátta. Lögð verður áhersla á fjölbreytta líkamsþjálfun þar sem unnið er markvisst að því að nemandi finni hreyfingu við sitt hæfi út frá getu og áhuga. Unnið er markvisst að því að nemendur öðlist færni í að skipuleggja eigin þjálfun auk þess sem farið er í grunnatriði réttrar líkamsbeitingar. Þá eru sköpuð tækifæri til að spreyta sig á fjölbreyttum aðferðum til þol-, styrktar- og liðleikaþjálfunar.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi upphitunar, úthalds- styrktar- og liðleikaþjálfunar
    • leiðum til að nýta líkams- og heilsurækt í daglegum athöfnum
    • æfingum sem bæta líkamsstöðu
    • fjölbreyttum aðferðum til heilsuræktar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta hverjum og einum
    • stunda æfingar og hreyfingu sem stuðlar að bættri líkamsbeitingu
    • stunda þjálfun og hreyfingu sem hefur áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til líkams- og heilsuræktar
    • nota samvinnu til að stuðla að tillitssemi og hvatningu
    • nota heilsulæsi til að efla og viðhalda góðri andlegri og líkamlegri heilsu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • styrkja jákvæða sjálfsmynd með þátttöku í almennri heilsurækt, leikjum og útiveru
    • skilja gildi samvinnu í leik og keppni
    • sýna öðrum virðingu við leik, nám og störf
    • glíma við fjölbreytt verkefni sem snúa að alhliða hreyfingu, líkams- og heilsurækt
    • nýta nánasta umhverfi sitt og náttúru til heilsuræktar
    • nýta sér undirstöðuatriði líkamsbeitingar í þjálfun
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn.