Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1493821185.84

    Inngangur að heimspeki
    HEIM2AA05
    6
    heimspeki
    Inngangur að heimspeki.
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Markmið áfangans er að opna heimspeki fyrir nemendum, veita þeim tækifæri til að hugsa með jafningjum sínum um grundvallar spurningar og hjálpa þeim að öðlast skilning á sjálfum sér og lífsviðhorfum sínum. Þetta er gert með því að ræða spurningar og greina hugmyndir og rök á bak við skoðanir. Eins eru hugmyndir nemenda tengdar við kenningar klassískra heimspekinga og þeim veitt hjálp við lestur og skilning á frumtextum. Leitast er við að tengja heimspekilegar spurningar við menninguna og heiminn umhverfis.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • viðfangsefni heimspekinnar, helstu spurningum og greinum
    • frumherjum grískrar heimspeki og hugmyndum þeirra
    • grískum hugtökum og gríska stafrófinu
    • helstu ritum heimspekinga sem fjallað verður um
    • hugmyndum Sókratesar og Platons um dyggð, samræðuaðferð, frummyndir, hið góða líf, þekkingu, fyrirmyndarríkið, skynsemi, hin sanna raunveruleika, réttlæti og afstæðishyggju
    • kenningum Aristótelesar um meðalhóf og dyggðir, breyskleika, manneðli, fjórar ástæður hlutanna, form og efni, möguleika og virkni, þrískiptingu vísinda og frumhreyfilinn
    • heimspekinni undir kirkjunni, hugmyndum Plótínusar og Ágústínusar um æðri veruleika, hið góða og tímann
    • aðferð efans eins og henni er beitt af Descartes, hugmyndinni um Guð og sjálfsvitundina
    • hugmyndum Kants um þekkingu, sjálfstæða hugsun og upplýsingu, skynsemi, hinn góða vilja, markmið og tæki, skilyrðislaust skylduboð.
    • hugmyndum John Stuart Mill um frelsi, hámarkshamingju, hagsmuni annarra, kúgun kvenna, nautnareikning, mælikvarða á gæði, tjáningarfrelsi
    • kenningu Sartre um frelsi, eðli, ábyrgð og angist
    • Páli Skúlasyni og skrifum hans um gagnrýna hugsun og gildin í lífinu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • hafa spurt sjálf sig heimspekilegra spurninga eins og: Hvað er raunveruleikinn? Hvernig virkar heimurinn? Hvað hefur gildi í lífinu? Eru aðrir til? Hvað er þekking? Er til æðri veruleiki?
    • orða hugsanir sínar
    • hlusta á aðra
    • færa rök fyrir skoðunum sínum
    • gera útdrætti úr textum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • greina mikilvægi þess að skilja hugmyndir annarra
    • greina heimspekileg vandamál í daglegu umhverfi og menningu.
    • geta greint aðferð og rökfærslu heimspekings við lestur á skrifum hans
    • greina ólíkar athafnir í samræðum.
    • sýna öðrum virðingu og umburðarlyndi jafnframt því að rækta með sér sjálfstæðar skoðanir og þor til að tala fyrir þeim