Þar sem þetta er byrjunaráfangi, er megináhersla lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins: Strax frá upphafi eru nemendur þjálfaðir í lesskilningi ásamt samskiptaþáttunum tali, hlustun og ritun. Áhersla er lögð á réttan framburð, uppbyggingu orðaforða og að þjálfa grunnatriði málfræðinnar. Til að þjálfa þessi atriði er hægt að taka mið af eftirfarandi:
Kynningu á sjálfum sér og öðrum, að heilsa og kveðja, fjölskylda og fjölskyldutengsl, aldur , búseta, starf, þjóðerni, lönd og tungumál. Hús og híbýli, lýsingar á fólki, póstkort og bréf, tölur, dagar, mánuðir, árstíðir og veður. Tómstundir og áhugamál, að líka/mislíka, að mæla sér mót, klukka og tímasetningar
Rússneska er eitt af útbreiddustu tungumálum veraldar og hafa um 150 milljónir manna rússnesku að móðurmáli. Kunnátta í rússnesku er mikilvæg fyrir pólitísk, efnahagsleg og ekki síst menningarleg samskipti við Rússland, löndin sem áður tilheyrðu Sovétríkjunum og Austur-Evrópu.
Í þessum áfanga er
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
einföldum fyrirmælum og helstu kveðjum og kurteisisávörpum
einföldum samtölum
einföldum texta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
gera sig skiljanlegan um einföld atriði
geti spurt og svarað einföldum spurningum
geti skrifað einfaldann texta
geti lesið einfaldann texta
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka þátt í einföldum umræðum
hafa skilning á rússneskum samtíma og getu til að dýpka hann frekar