Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1495629754.89

    Vigrar og hornaföll
    STÆR3VH05
    58
    stærðfræði
    hornföll, vigrar o.fl.
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Efni áfangans er tvívíð rúmfræði þar sem vigurhugtakið skipar aðalhlutverk. Auk þess eru hornaföll skilgreind og unnið með þau á almennan hátt. Um er að ræða töflukennslu og hópavinnu en auk þess er efnið tilvalið til að nemendur kynni sér það sjálfir. Samhliða þessum kennsluháttum er svo leiðsagnarnám þar sem nemendur er leiddir áfram skref fyrir skref.
    STÆR2HJ05 - (Stæ203)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • vigurhugtakinu og aðgerðum á vigra
    • flatarmyndum, þrí- og ferhyrningum
    • einingarhringnum og skilgreiningu hornafalla
    • einingum sem notaðar eru til að mæla horn, gráður og bogaeiningar
    • jöfnum hrings, sporbaugs og breiðboga
    • ofanvarpi, jafnt punkts sem vigurs á línu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • teikna vigra, -samlagningu og –frádrátt
    • nota einingarhringinn til að fá allar lausnir á hornafallajöfnum
    • nota ofanvörp til að finna staðsetningar og fjarlægðir
    • nota vigra til að lýsa færslu hluta t.d.í formi krafta
    • nota innfeldi tveggja vigra til að finna horn milli þeirra
    • geta rakið sannanir á helstu reglum úr námsefninu
    • nota vigurreikning til að teikna einfaldar (hreyfi)myndir með tölvuforriti, s.s. GeoGebra
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • útskýra einingarhringinn fyrir óupplýstum
    • sýna almennan skilning á vigrum og vigraaðgerðum
    • útskýra jöfnur hrings, sporbaugs og breiðboga
    • miðla efninu til annarra á þann hátt að þeir upplifi áfangann sem eina heild hvað varðar samhengi hluta
    • gera sér grein fyrir mismunandi framsetningu á stærðfræðilegum verkefnum og lausnum
    • túlka tölulegar niðurstöður á rúmfræðilegan hátt
    • tengja hornafræði og vigurreikning við aðrar greinar t.d. eðlisfræði
    • geta fylgt eftir röksemdum í texta
    Byggir á lokaprófi, vinnusemi í kennslutíma, heimanámi og hópvinnu og skyndiprófum.