Nemendur kynnast forritun og grunnbyggingu forrita í gegnum forritunarmálið Python. Farið verður í cmd, inntak,úttak,breytur og tög, skilyrðissetningar, lykkjur, föll, lista, dictionary, módúlur og fleira.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
forritunarmálinu Python
grundvallaratriðum forritunar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skrifa almenn forrit
leysa almenna þrautir forritunarlega
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
halda áfram í frekara nám í forritun
skrifa einföld forrit
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.