Haldið er áfram að ná betri tökum á hugtökum úr fyrra námskeiði. Farið er yfir atriði eins og breytur, listar, dictionaries og lykkjur. Einnig verður nú farið í hlutbundna forritun þar sem hlutir, hjúpun og erfðir skipa stórt hlutverk. Einnig verður unnið forritunarlega með skjöl. Mikil áhersla verður á gæði kóðans.
FORR1GR05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
breytum
listum
dictionaries
lykkjum
hlutbundinni forritun
hjúpun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skrifa forrit
beita hjúpun
beita hlutbundinni forritun við að bæta gæði tölvukerfa
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leysa almennar þrautir forritunarlega
nýta sér tölvunarfræði í öðrum áföngum og störfum
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.