Kennt verður í samræmi við námskeiðið Gagnaskipan í HR. Farið verður yfir: Hugræn gagnatög, benda, kvikleg fylki, sniðmát, hnúta, tengda lista, tvítengda lista, klasa, stafla, biðraðir. Einnig förum við í að endurkvæma forritun, erfðir og fjölvirkni.
FORR4HÁ05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hugræn gagnatög
bendlum
kviklegum fylkjum
sniðmáti
hnútum
tengdum listum
tvítengdum listum
klösum
stöflum
biðröðum
endurkvæmni
erfðir
fjölvirkni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skrifa háþróuð forrit
skrifa endurnýjanleg forrit
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna sjálfstætt
vinna við hugbúnaðarþróun
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá