Áfanginn er tekinn á fyrsta ári. Honum er ætlað að skerpa sýn nemenda og auka áhuga þeirra á samfélagi, sögu og nærumhverfi. Í áfanganum fléttast saman námsgreinar eins og saga, félagsfræði og landafræði sem á að auka læsi þeirra á nærumhverfi sitt. Áhersla er lögð á að nemendur tileinki sér vönduð, skapandi vinnubrögð og gagnrýna hugsun við fjölbreytta verkefnavinnu. Áfanginn byggist að verulegu leyti á verkefnavinnu í kennslustundum þar sem nemendur vinna verkefni sín undir leiðsögn kennara. Námið fer fram bæði innan og utan skólans og sækja nemendur sér fróðleik og gögn á fjölbreytta vegu, meðal annars í vettvangsferðum. Virk þátttaka nemenda í eigin námi liggur til grundvallar og því er mikið lagt upp úr að auka áhuga þeirra á umhverfi sínu og náminu almennt. Einkunnar orð áfangans eru samvinna og ábyrgð .
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu hugtökum eins og kosningaréttur, sjálfræði, lýðræði, samfélag, lýðveldi, fjölmenning, sjálfbærni, auðlindir, landnýting, vistfræði og náttúruhamfarir
áhrifum mannsins á náttúruna og samfélagið
eigin ábyrgð og hlutverk í samfélagi mannanna
byggðaþróun og atvinnulíf í heimabyggð
viðfangsefnum sem eru áberandi í þjóðfélagsumræðu á hverjum tíma
skólakerfinu og stöðu eigin skóla í samfélaginu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
afla sér upplýsinga um umhverfi sitt og samfélag
gera sér grein fyrir stöðu sinni í eigin menningarsamfélagi með það að markmiði að vera virkur þjóðfélagsþegn
greina og flokka ýmis samfélagsvandamál eins stéttskiptingu og fordóma
kynna málefni úr fréttum eða fjölmiðlum út frá samfélagi eða sögu fyrir samnemendum sínum
skipuleggja vettvangsferð eða heimsókn tengda efni áfangans
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta upplýsingar og vinna með þær á gagnrýnan hátt þannig að þær skil honum þekkingu og aukinni hæfni til náms í samfélagsfræði
geta gert sér grein fyrir sjónarmiðum sínum og skoðunum
geta skipst á skoðunum við aðra og útskýrt hugmyndir sínar fyrir samnemendum
geta tekið fordómalausa afstöðu í samfélagsmálum og rætt hana á lýðræðislegan hátt
draga skynsamlegar ályktanir um samfélagslega,menningalega og vistfræðilega ábyrgð sína og hve mikilvægt framlag hvers einstaklings er
greina stöðu sína í umhverfinu sem hann lifir í, bæði samfélaginu og nátturulegu umhverfi
gera sér grein fyrir hvað felst í því að vera ábyrgur samfélagsþegn
skilja mikilvægi þessi að jafnrétti ríki í verkefnavinnu og umræðum
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.