Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1504876381.55

    Samfélags- og náttúrufræði
    SNAT1NÁ05
    3
    Samfélags- og náttúrufræði
    Náttúrufræði
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Áfanginn byggist á verulegu leyti á verkefnavinnu í kennslustundum þar sem nemendur vinnna verkefni sín undir leiðsögn kennara. Námið fer fram bæði innan og utan skólans og sækja nemendur sér fróðleik og gögn á fjölbreytta vegu. Virk þátttaka nemenda í eigin námi liggur til grundvallar og því er mikið lagt úr að auka áhuga þeirra á umhverfi sínu og náminu almennt. Einkunnar orð áfangans eru samvinna og ábyrgð.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu hugtökum eins og sjálfbærni, auðlindir, landnýting, vistfræði og náttúruhamfarir
    • einkennum gróðurfars og jarðfræði svæðisins
    • áhrifum mannsins á náttúruna og eigin ábyrgð
    • viðfangsefnum sem eru áberandi í þjóðfélagsumræðu á hverjum tíma
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • afla sér upplýsinga um umhverfi sitt
    • kynna sér málefni úr fréttum eða fjölmiðlum út frá landafræði eða náttúrufræði fyrir samnemendum sínum
    • skipuleggja vettvangsferð eða heimsókn tengd efni áfangans
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • meta upplýsingar og vinna með þær á gagnrýnan hátt þannig að þær skili nemenda þekkingu og aukinni hæfni til náms í náttúrufræði
    • geta gert sér grein fyrir sjónarmiðum sínum og skoðunum
    • geta skipst á skoðunum við aðra og útskýra hugmyndir sínar fyrir samnemendum sínum
    • draga skynsamlegar ályktanir um ábyrgð sína í tengslum við umhverfis- og náttúruvernd og hve mikilvægt framlag hvers einstaklings er
    • greina stöðu sína í umhverfinu sem hann lifir í, bæði í samfélaginu og náttúrulegu umhverfi
    • skilja mikilvægi þess að jafnrétti ríki í verkefnavinnu og umræðum
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.