Í áfanganum er fjallað um starfsemi mannslíkamans með áherslu á bein og vöðva. Sérstök áhersla verður lögð á þau líffæri og líffærakerfi sem tengjast hreyfingum mannslíkamans. Einnig verður fjallað um hreyfingu í liðamótum og stefnu hreyfinga. Fjallað verður einstaka vöðva, upptök þeirra, festu og starf. Fjallað eru um hugtök og grundvallaratriði hreyfifræðinnar og komið inn á tækni íþróttagreina. Enn fremur er fjallað um rétta lyftitækni, starfsstellingar og hreyfingar við vinnu.
ÍÞRF2ÞJ05 eða fimm einingar í líffræði á öðru þrepi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu vöðvum og vöðvahópum mannslíkamans
hlutverki beinagrindar og hreyfingum helstu liðamóta
beinum, liðbönd og liðamótum
grundvallaratriðum hreyfifræðinnar
góðri líkamstöðu i starfi og réttri lyftitækni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
finna lýsandi æfingar fyrir þjálfun einstakra vöðva og vöðvahópa
vinna með helstu hreyfilögmálin
geta notað rétta lyftingatækni og verið meðvitaður um rétta líkamsbeitingu í starfi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta greint mun á réttri og rangri líkamsstöðu
geta greint vöðvavinnu í ákveðnum æfingum
geta notað helstu hreyfilögmál til að skýra út ýmsar hreyfingar í íþróttum
geta greint hreyfingu helstu vöðva mannslíkamans frá upptöku og festu
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.