Í áfanganum kynnast nemendur og læra að nota fjölbreyttan hugbúnað og samskiptatæki og vinna með upplýsingar á margvíslegu formi við lausn og framsetningu viðfangsefna í námi sínu. Markmið námsins er því að stuðla að færni þátttakenda í fjölbreyttu náms- og starfsumhverfi með hjálp upplýsingatækni. Í náminu er einnig lögð rík áhersla á sjálfstæð og vönduð vinnubrögð og að námið nýtist sem góður undirbúningur fyrir t.d. störf í verslun og þjónustu. Farið verður yfir helstu póst- og samskiptaforrit og forrit sem tengjast glærugerð, ritvinnslu og töflureiknum sem og notkun leitarvéla og gagnabanka.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi fingrasetningar á hnappa- og númeraborð og réttrar vinnustöðu við tölvu
helstu samskiptatækjum og hugbúnaði
algengustu forritum skrifstofuhugbúnaðar svo sem glærugerð, ritvinnslu og töflureikni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota rétta fingrasetningu á hnappa og númeraborð
nota tölvupóst og samskiptanet á markvissan hátt
nota helstu forrit sem tengjast glærugerð, ritvinnslu og töflureiknum
nota leitarvélar, gagnabanka og netaorðabækur
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta, varðveita og miðla upplýsingum á skipulagðan og skilvirkan hátt
vinna með gögn í mismunandi hugbúnaði og miðla þeim á mismunandi hátt eftir umfangi og eðli gagnanna
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.