Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1517323132.15

    Adventure & Fantasy: Wizards, Arthur’s Knights, talking cats and green giants
    ENSK3AF05
    53
    enska
    Fantasy & Adventure
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Nemendur lesa fjölbreytta texta frá mismunandi tímum og ólíkum höfundum sem skrifa ævintýri og fantasíur á ensku. Nemendur velta fyrir sér uppruna og menningarheimi ævintýra- og fantasíubókmennta og leitast við að skoða tengsl á milli þeirra. Einnig verða ævintýra- og fantasíukvikmyndir til umfjöllunar. Lesefni: Sir Gawain and the Green Knight, Silmarillion, Alice in Wonderland, og American Gods Myndefni: Alice in Wonderland og American Gods.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • einkennum sagnaheims ævintýra- og fantasíubókmennta
    • áhrifum skálda eins og J.R.R. Tolkien, Lewis Caroll og Neil Gaiman á fantasíubókmenntir dagsins í dag
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa fjölbreyttan texta með sérhæfðum orðaforða
    • horfa á kvikmyndir með gagnrýnu hugarfari
    • mynda sér skoðanir á efni áfangans og geta komið þeim frá sér í ræðu og riti
    • temja sér gagnrýna hugsun við lestur og áhorf
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gera grein fyrir viðfangsefni áfangans á fræðilegan hátt
    • skrifa fræðilegar greinargerðir um efni áfangans.