Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1528214196.79

    Kvikmyndir sérnám
    ÍSLE1ÍK04(SN)
    124
    íslenska
    Íslenskar kvikmyndir
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    SN
    Markmið áfangans er að nemendur fái innsýn í heim kvikmynda. Áhersla er lögð á að kenna nemendum að fylgja þræði í kvikmyndinni þannig að þeir geti sagt frá eða unnið úr honum á annan hátt. Nemendur læri að skoða, ræða og greina menningu og samfélag í gegnum kvikmyndir og þjálfist um leið í gagnrýnni hugsun og færni í tjáskiptum og rökræðum eins og kostur er.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • heimi kvikmyndanna eins og kostur er
    • skoðunum, hefðum og gildum sem koma fram í þeim kvikmyndum sem sýndar eru í áfanganum
    • menningarlegu gildi kvikmyndanna
    • skemmtanagildi kvikmyndanna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja texta kvikmynda og myndmál eins og kostur er
    • rökræða, skiptast á skoðunum um kvikmyndir
    • skrifa kvikmyndarýni
    • meta upplýsingar á gagnrýninn hátt
    • flytja af nokkru öryggi ræður, endursagnir, lýsingar og/eð kynningar á tileknum málefnum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • njóta kvikmynda
    • öðlast færni í tjáskiptum og rökræðu
    • draga saman aðalatriði
    • beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu kvikmyndanna
    • átta sig á samfélagslegum skírskotunum eins og kostur er
    Símat sem byggir á áhuga og virkni nemanda í ýmis konar verkefnagerð.