Að nemendur kynnist íslensku samfélagi frá því um 1960 - 2018 eins ogþað birtist í íslenskum kvikmyndum.
Skoði og skilgreini þann
menningarheim í ljósi fortíðar og nútíðar. Nemendur horfa á fimm til sjö
íslenskar kvikmyndir. Meginmarkmiðið er að nemendur geri sér grein
fyrir þeim samfélagsbreytingum sem átt hafa sér stað á Íslandi
undanfarin 60 ár. Að athuga sérstaklega hvernig þessar breytingar hafa
áhrif á einstaklinginn í samfélaginu með því að horfa á íslenskar
kvikmyndir sem gerast á árunum uppúr 1960 til dagsins í dag. Námið
byggir á virkri þátttöku nemenda þar sem þeir vinna verkefni í tengslum
við hverja mynd og athuga trúverðugleika kvikmyndalistarinnar sem frásagnarmiðils.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
íslensku samfélagi
breytingum á íslensku samfélagi og áhrifa á einstaklinginn
íslenskri tungu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skoða og skilgreina menninguna sem birtist í kvikmyndunum
meta trúverðugleika kvikmyndalistarinnar sem frásagnarmiðils
tjá sig á íslensku, bæði munnlega og skriflega
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja íslenskt samfélag
taka þátt í umræðu um íslenskt samfélag
verða öruggari samfélagsþegn
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.