Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1552568246.29

    Stærðfræði - Algebra og rúmfræði
    STÆR2AR05(SB)
    103
    stærðfræði
    algebra, rúmfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    SB
    Í áfanganum er farið í undirstöðuatriði algebru, veldi, veldareglur og rætur. Einnig er farið í föll, gröf falla og hagnýt verkefni eru leyst. Hagnýting prósentu- og vaxtareiknings. Hornaföll í rétthyrndum þríhyrningi og einslögun. Unnið með flatarmál, rúmmál og yfirborð einfaldra strendinga.
    Nemandi hafi hæfnieinkunnina B úr grunnskóla eða hafi lokið undirbúningsáfanga.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • undirstöðuatriðum algebru
    • veldum, veldareglum og rótum
    • fallhugtakinu og túlkun grafa
    • prósentu og vaxtareikningi
    • hornaföllum í rétthyrndum þríhyrningi og einslögun
    • hugtökunum; hringur, radíus, þvermál og ummál hrings
    • hornasummu þríhyrnings, topphorni, grannhorni, og hornum við samsíða línur
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna með einslögun og hornaföll í rétthyrndum þríhyrningi
    • leysa hagnýt verkefni í prósentu- og vaxtareikningi
    • teikna upp fall út frá gildatöflu og lesa út úr grafinu ýmsar upplýsingar
    • beita velda- og rótarreglum
    • beita reglum sem gilda í bókstafareikningi, sbr. að þátta, liða og leysa jöfnur
    • reikna flatarmál og ummál þríhyrninga og ferhyrninga
    • reikna rúmmál og yfirborð ferstrendinga
    • reikna hornasummu þríhyrnings til að finna horn
    • nota reglur um topphorn, grannhorn og horn við samsíða línur
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • setja margskonar verkefni upp með táknmáli stærðfræðinnar og leysa þau
    • beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna og rökstyðja aðferðir sínar
    • beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna og rökstyðja aðferðir sínar
    • skrá lausnir sínar skipulega og skiptast á skoðunum um þær við aðra
    • átta sig á tengslum aðferða við framsetningu
    • beita frumkvæði, innsæi og frumleika við lausn verkefna
    • nýta sér stærðfræðikunnáttuna í daglegu lífi
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá