Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1558604800.39

    Íslenskt samfélag í gegnum kvikmyndir
    ÍSAN2KK05
    2
    íslenska sem annað mál
    Samfélag, kvikmyndir
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Að nemendur kynnist íslensku samfélagi frá því um 1960 - 2018 eins og það birtist í íslenskum kvikmyndum. Skoði og skilgreini þann menningarheim í ljósi fortíðar og nútíðar. Nemendur horfa á fimm til sjö íslenskar kvikmyndir. Meginmarkmiðið er að nemendur geri sér grein fyrir þeim samfélagsbreytingum sem átt hafa sér stað á Íslandi undanfarin 60 ár. Að athuga sérstaklega hvernig þessar breytingar hafa áhrif á einstaklinginn í samfélaginu með því að horfa á íslenskar kvikmyndir sem gerast á árunum uppúr 1960 til dagsins í dag. Námið byggir á virkri þátttöku nemenda þar sem þeir vinna verkefni í tengslum við hverja mynd og athuga trúverðugleika kvikmyndalistarinnar sem frásagnarmiðils.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Íslensku samfélagi
    • Breytingum á íslensku samfélagi og áhrifa á einstaklinginn
    • Íslenskri tungu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Skoða og skilgreina menninguna sem birtist í kvikmyndunum
    • Meta trúverðugleika kvikmyndalistarinnar sem frásagnarmiðils
    • Tjá sig á íslensku, bæði munnlega og skriflega
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Skilja íslenskt samfélag
    • Taka þátt í umræðu um íslenskt samfélag
    • Verða öruggari samfélagsþegn