Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1560868224.53

    Bókmenntir fyrri alda
    ÍSLE3BF05
    77
    íslenska
    bókmenntir fyrri alda
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum verður viðfangsefnið bókmenntasaga og bókmenntir fyrri alda. Nemendur lesa Íslendingasögu og fjallað er um bókmenntir og bókmenntastefnur fyrri alda frá 1550-1920. Haldið er áfram að þjálfa nemendur í ritun og heimildavinnu.
    ÍSLE2MN05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • ritgerðarsmíð og heimildavinnu
    • orðaforða sem nægir til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • rita heimildaritgerðir þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun við úrvinnslu og kemur efninu á framfæri á skýran og greinargóðan hátt á blæbrigðaríku máli
    • ganga frá heimildaritgerðum og hvers kyns texta og að nýta sér uppbyggilega gagnrýni
    • draga saman og nýta á viðurkenndan og gagnrýninn hátt upplýsingar úr hvers kyns heimildum og meta áreiðanleika þeirra
    • flytja af öryggi vel uppbyggða kynningu á krefjandi efni
    • lesa sér til gagns og gamans texta frá fyrri öldum
    • átta sig á helstu bókmenntastefnum fyrri alda
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrifa skýran og vel uppbyggðan texta og geta valið ritstíl eftir aðstæðum og viðtakendum
    • beita málinu á viðeigandi og árangursríkan hátt við mismunandi aðstæður
    • tjá rökstudda afstöðu og taka virkan þátt í málefnalegri umræðu
    • draga saman aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta, átta sig á samfélagslegri skírskotun og ná duldum boðskap og hugmyndum
    • sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
    • sýna þroskaða siðferðisvitund, víðsýni, sköpunarhæfni og samlíðan í málflutningi sínum, umfjöllun og verkum
    Lokapróf og vinnueinkunn