Lögð er áhersla á mikilvægi hönnunar í efnis-, snið-, munstur- og litavali. Einnig er fata- og stílsagan höfð til viðmiðunar. Nemandi lærir að tengja máltöku við vaxtar- og stærðarval auk sniðbreytinga, ásamt því að kynnast fjölbreytni sniða og samræmingu milli vals á efni og sniðum. Megináhersla er lögð á útfærslu hugmynda yfir í sniðteikningu og prufuflík að fullunnu verki. Nemandi vinnur skissubók, útbýr vinnuskýrslu með útskýringum á vinnu sinni frá prufu að fullgerðum kjól. Lögð er áhersla á skapandi hugsun, frumkvæði og frumleika. Einnig eiga nemendur að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og þjálfa hæfni til að tjá sig og rökstyðja verkefni sín.
FATA2SH05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
• forsendum skapandi hugsunar í hönnun á fatnaði
• forsendum hönnunar hvað varðar reynslu, notkun, sögu og hefðir
• mikilvægi undirbúnings-, tilrauna- og rannsóknarvinnu með öflun og úrvinnslu upplýsinga
• forsendum hugmyndavinnu, framkvæmdar og framvindu að fullunnu verki
• mismunandi útfærslu sniða og muninum á fjöldaframleiddum og sérsaumuðum fatnaði
• leiðbeiningum í máli og myndum varðandi sniðútfærslur og saumtækni
• sambandinu milli sjálfstæðra, faglegra og skapandi vinnubragða og vinnuframlags
• mikilvægi þess að koma vinnu sinni á framfæri og rýna í eigin verk og annarra
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
• vinna vandaða hugmyndavinnu með öflun og úrvinnslu upplýsinga
• skilgreina forsendur og þörf og endurmeta hugmyndir sínar
• temja sér frumkvæði, frumleika og skapandi hugsun
• útfæra sniðbreytingar út frá eigin hugmyndum• útfæra eigin hugmynd í formi tísku- og útlitsteikninga
• útfæra sniðbreytingar út frá eigin hugmyndum
• temja sér sjálfstæð og fagleg vinnubrögð
• setja fram vinnuáætlun og greina verkþætti
• auka færni í að máta og nota gínu við lagfæringu sniða
• vinna með óhefðbundin efni og þekkja eiginleika þeirra
• tileinka sér saumtækni og kunnáttu í straujun og pressun
• að endurmeta framkvæmd verksins á öllu vinnuferlinu
• temja sér öguð og vönduð vinnubrögð við frágang verkefna
• útbúa (vinna) hugmynda- og vinnumöppu í máli og myndum
• kynna eigin verk og taka þátt í sýningu
• rýna í eigin verk og annarra með uppbyggilegri gagnrýni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
• geta nýtt sér upplýsingatækni og aðra miðla við hugmyndavinnu ...sem er metið með... verkefnum og sýningu
• vera fær um að taka sjálfstæða ákvörðun varðandi verkefnaval ...sem er metið með... verkefnum og sýningu
• tileinka sér vinnuferlið frá hugmynd að fullgerðri flík ...sem er metið með... verkefnum og sýningu
• kunna skil á forsendum hönnunar hvað varðar nýsköpun í formi tilrauna, rannsókna og úrvinnslu upplýsinga ...sem er metið með... verkefnum og sýningu
• fylgja eftir skipulögðu vinnuferli miðað við tímaþátt, endurmat og framkvæmd verksins ...sem er metið með... verkefnum og sýningu
• sýna frumkvæði, frumleika og skapandi hugsun ...sem er metið með... verkefnum og sýningu
• koma vinnu sinni á framfæri í formi kynningar eða sýningar ...sem er metið með... verkefnum og sýningu
• rýna í eigin verk og rökstyðja niðurstöður bæði munnlega og skriflega á uppbyggilegan hátt ...sem er metið með... verkefnum og sýningu
Við námsmat er lögð áhersla á frumleika og skapandi hugsun, frumkvæði, vönduð og sjálfstæð vinnubrögð. Lögð er áhersla á mat á úrvinnslu hugmynda, vinnuferli, framkvæmd og endurmat á vinnsluferlinu. Notkun á námsgögnum í upplýsingaleit og hugmyndavinnu, sniðagerð og saumtækni.