Mannkynssaga 3, tímabilið 1800-2010. Í áfanganum er farið nánar í sögu 18., 19. og 20. aldannna en gert var í SAGA2HI05. Sérstök áhersla er lögð á átök; orsakir og afleiðingar. Fjórir megin þættir eru teknir fyrir átök á 18. öld, átök á 19. öld, heimstyrjaldirnar og kalda stríðið. Mikil áhersla lögð á verkefnavinnu og sjálfstætt nám nemenda. Áhersla verður lögð á að nemendur nýti sér fjölbreyttar heimildir, þar á meðal; munnlegar heimildir, dagblöð, sjónvarp, veraldarvefinn, skáldskap og kvikmyndir.
Grunnáfangi í sögu á 2. þrepi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
sögu 19. aldarinnar með sérstakri áherslu á átök
sögu 18. aldar með áherslu á stjórnmál
Sögu 19. aldarinnar með sérstakri áherslu á átö
sögu 19. aldar með áherslu á stjórnmál
sögu 20. aldarinnar með sérstakri áherslu á átök
sögu 20. aldarinnar sem lykli að stöðu heimsmála í dag
áhrifum átaka á mannlegt samfélag
fjölbreytileika heimilda til gagnaöflunar og takmörkum þeirra
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
færa rök fyrir máli sínu
vinna með heimildir
skrifa fræðilega texta
geta lýst aðstæðum á tilteknum tíma og rakið atburðarás í stórum dráttum
kynna ákveðið viðfangsefni sem byggir á ítarlegri heimildaöflun
skýra helstu viðburði tímabilsins
gera greinarmun á staðreynd og túlkun
draga sjálfur ályktanir
geta beitt gagnrýnni hugsun við rannsókn á mismunandi viðfangsefni
flytja af nokkru öryggi endursagnir, kynningar og lýsingar á tilteknum málefnum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
kynna fræðilegt efni á viðeigandi hátt
færa rök fyrir niðurstöðum
gera sér grein fyrir orsakir og afleiðingar
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.