Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1600682651.71

    Kynning á umhverfisfræði
    UMHV1NU05
    10
    umhverfisfræði
    Kynning á umhverfisfræði
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Áfanginn byggist að verulegu leyti á verkefnavinnu í kennslustundum þar sem nemendur vinna verkefni sín undir leiðsögn kennara. Námið fer fram bæði innan og utan skólans og sækja nemendur sér fróðleik og gögn á fjölbreytta vegu. Virk þátttaka nemenda í eigin námi liggur til grundvallar og því er mikið lagt upp úr að auka áhuga þeirra á umhverfi sínu og náminu almennt. Einkunnarorð áfangans eru samvinna og ábyrgð.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hugtökum eins og sjálfbærni, auðlindir, landnýting, vistfræði
    • áhrifum mannsins á náttúruna og eigin ábyrgð
    • samspil manns og umhverfis
    • viðfangsefnum sem eru áberandi í þjóðfélagsumræðu á hverjum tíma í tengslum við markmið áfangans
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • afla sér upplýsinga um umhverfi sitt
    • kynna málefni úr fréttum eða fjölmiðlum sem tengjast umhverfismálum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • meta upplýsingar og vinna með þær á gagnrýnan hátt þannig að þær skili honum þekkingu og aukinni hæfni til náms í umhverfisfræði
    • geta gert sér grein fyrir sjónarmiðum sínum og skoðunum, geti skipst á skoðunum við aðra og útskýrt hugmyndir sínar fyrir samnemendum
    • draga skynsamlegar ályktanir um ábyrgð sína í tengslum við umhverfis- og náttúruvernd og hve mikilvægt framlag hvers einstaklings er
    • greina stöðu sína í umhverfinu sem hann lifir í, bæði samfélaginu og náttúrulegu umhverfi
    • skilja mikilvægi þess að jafnrétti ríki í verkefnavinnu og umræðum
    Þekking, leikni og hæfni verða metin með fjölbreyttum hætti. Má þar nefna leiðsagnarmat þar sem lögð er áhersla á leiðbeinandi endurgjöf, markvissar spurningar, sjálfs- og jafningjamat. Einnig er þátttaka og virkni nemanda metin í umræðum og hópastarfi.