Haldið er áfram við að ná betri tökum á hugtökum frá fyrra námskeiði eins og breytur, listar, dictionaries og lykkjur. Einnig verður farið í hlutbundna forritun þar sem hlutir, hjúpun og erfðir spila stórt hlutverk. Mikil áhersla verður lögð á gæði kóðans.
FORR2PH05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Breytum
Listum
Dictionaries
Lykkjum
Hlutbundinni forritun
Hjúpun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Skrifa forrit
Vinna sjálfstætt
Beita hjúpun og hlutbundinni forritun við að bæta gæði tölvukerfa
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Halda áfram að ná betri tökum á tölvunarfræði. Þessi hæfni nýtist í mörgum áföngum og störfum