Framhaldsskólar

lög um framhaldsskóla, sem Alþingi samþykkti á 135. löggjafarþingi, fela í sér veigamiklar breytingar á skipulagi náms á framhaldsskólastigi. Lögin er afrakstur af vinnu sem unnin hefur verið á undanförnum árum og lýtur að því að endurskoða lögbundna skipan framhaldsskólastigsins og leggja drög að breytingum á henni, þar sem náið tillit er tekið til endurskoðunar laga sem varða önnur skólastig.

  • Réttur nemenda til skólavistar og náms styrktur með fræðsluskyldu til 18 ára aldurs
  • Gildi stúdentsprófs sem undirbúnings fyrir háskólanám óskorað en framhaldsskólum gefinn kostur á að byggja upp sveigjanlegt námsframboð hvað inntak og skipulag náms varðar
  • Skipulag skólastarfs miðist við kröfur og væntingar nemenda, sveigjanleiki námsskipulags stóraukinn, námsleiðum fjölgað og skilyrði sköpuð fyrir fleiri til að ljúka skilgreindu námi
  • Ráðgjöf og stuðningur við nemendur efldur
  • Framhaldsskólum veitt frelsi til að þróa sérstakar námsbrautir sem byggja á sérstöðu þeirra og styrkleika og spurn eftir sérhæfðum námsleiðum og úrræðum
  • Dregið úr miðstýringu á námsframboði og í námskrárgerð
  • Aukið svigrúm og sveigjanleiki við gerð námsbrautarlýsinga með nýju einingamatskerfi
  • Mat á vinnu nemenda í öllu námi á framhaldsskólastigi gert gagnsætt og stúdentspróf á bóknáms- og verknámsbrautum jafngilt
  • Menntastofnunum falin aukin ábyrgð á að þróa námsframboð á mörkum skólastiga til að auka sveigjanleika og möguleika nemenda við flutning milli skólastiga
  • Leitast við að tryggja hag og stöðu nemenda í iðn- og verknámi, og starfsnámi almennt, m.a. með því að framhaldsskólar beri ábyrgð á vinnustaðanámi
  • Leitast við að tryggja gæði náms með því að stórefla mat og eftirlit og með stuðningi við umbætur í skólastarfi

Deildu þinni skoðun

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>