Námskrárgrunnurinn er frjáls og opinn hugbúnaður sem aðstoðar fyrst og fremst skóla og mennta- og menningarmálaráðuneytið að halda utan um vinnu og birtingu námskráa fyrir íslenska menntakerfið.
Skólar geta unnið saman að námskrám, endurnýtt áfanga og brautir milli skóla, metið nemendur á milli skóla með auðveldari hætti, haldið utan um allar upplýsingar á einum stað, látið valdar upplýsingar flæða á aðra staði, útbúið skýrslur og hefti og margt fleira.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið getur fylgst betur með þróun skólamála á Íslandi, breytingum á skólakerfinu, samþykkt brautir sem skólar óska eftir að ráðuneytið samþykki, miðlað upplýsingum með betri hætti, kostnaðarmetið áfanga og brautir skóla og svo framvegis.
Námskrárgrunnurinn er ekki kominn í notkun en unnið er hörðum höndum að því að koma fyrstu útgáfunni í loftið fyrir áramótin 2010-2011.



Ábyrgðar- og umsjónaraðili