Námsbraut

Titill brautar: Námsleið: Námslok:
Listnámsbraut (Staðfestingarnúmer 76) 15-76-3-7 stúdent hæfniþrep 3
Lýsing: Markmið brautarinnar er að nemendur öðlist góða grunnmenntun á sviði lista með áherslu á þrjú svið, fata- og textílhönnun, leiklist og myndlist. Stúdentspróf af brautinni veitir bæði markvissan undirbúning til frekara náms í listgreinum í sérskólum eða skólum á háskólastigi auk þess sem það veitir nemendum góðan grunn undir hverslags nám og störf. Samfélagið gerir sífellt meiri kröfur um skapandi einstaklinga og veitir listnámsbrautin sérlega góða þjálfun í skapandi hugsun og athöfnum og þjálfar nemendur í hugmyndaauðgi og frumlegum lausnum hvers kyns verkefna. Nemendur geta sniðið kjörsvið og valeiningar að eigin áhugasviðum eða undirbúið sig undir annars konar nám í háskólum með hliðsjón af aðgangsviðmiðum viðkomandi háskólanáms.

Grunnupplýsingar Meginatriði brautarlýsingar

Inntökuskilyrði: Ekki er um eiginleg inntökuskilyrði að ræða á brautina. Nemendur raðast í kjarnagreinum eftir skólaeinkunn. Þessar kjarnagreinar eru danska, enska, íslenska og stærðfræði. Til að fara í framhaldsskólaáfanga í þessum kjarnagreinum þarf skólaeinkunnina sjö (7) eða B. Bókstafseinkunnin er háð endanlegri útfærslu grunnskólans á bókstafskerfinu.
Skipulag: Námið á listnámsbraut er sambland af bóklegum áföngum og íþróttum í bland við verklegt listnám. Kennsluaðferðir eru mjög fjölbreyttar t.d. fyrirlestrar, samvinnunám, einstaklingsnám, leitarnám, ritun og tjáning. Námið fer að stórum hluta fram á verkstæðum, í verkefna- og tölvustofum og með vettvangsferðum. Listnámshluti tónlistarsviðs fer fram í viðurkenndum tónlistarskólum, sem starfa eftir almennri námskrá tónlistarskóla.
Námsmat Námsmat er fjölbreytt og felst að hluta til í símati verkefna, ferilmöppum, ritgerðum og smærri skriflegum verkefnum og að hluta til í lokaprófi, jafningjamati og sjálfsmati. Listnámshlutanum lýkur með yfirgripsmiklum lokaverkefnum.
Starfsnám:
Reglur um námsframvindu: Nemandi þarf að ljúka 202 einingum til að ljúka stúdentsprófi. Námstíminn er að meðaltali 6-7 annir. Lágmarkseinkunn er 5,0 í öllum áföngum.
Hæfniviðmið:

Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...

  • takast á við listnám á háskólastigi.
  • hagnýta sér sérhæfða þekkingu, leikni, aðferðir og verkkunnáttu í þeim listgreinum sem hann hefur valið sér.
  • tjá listrænar niðurstöður og miðla þekkingu um eigin verk eða túlkun á skýran, gagnrýninn og skapandi hátt.
  • sýna frumkvæði og skapandi nálgun í listgrein sinni og nota fjölbreyttar aðferðir við útfærslu og túlkun.
  • afla sér upplýsinga og þekkingar á skipulagðan og gagnrýninn hátt.
  • setja þekkingu á sínu fagsviði í samfélagslegt og alþjóðlegt samhengi.
  • sýna frumkvæði og hugmyndaauðgi í útfærslu og flutningi eigin hugverka eða túlkunar.
  • taka þátt í menningu samfélagsins og gera sér grein fyrir fagurfræðilegu, siðferðilegu og samfélagslegu hlutverki listamannsins.
  • kynna verkefni sín og fjalla um listgrein sína, sköpun og túlkun og staðsetja í menningarlegu og listsögulegu samhengi.
  • meta listrænan styrk sinn og koma auga á hagnýtingu menntunar sinnar.
  • greina, tjá sig um og meta eigin verk og túlkun og annarra af þekkingu, víðsýni og umburðarlyndi.
  • setja upp sýningu eða listviðburð með eigin verkum og annarra.

Einingafjöldi Fjöldi framhaldsskólaeininga sem þarf til að útskrifast af brautinni

202  fein.

Kjarni Skylduáfangar brautarinnar


Kjarni brautar
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Hlutfall eininga á þrepum í kjarna
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
 
 
 
 

Bundið pakkaval

Myndlistasvið
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Fata og textílhönnunarsvið
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Leiklistasvið
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Fjöldi pakka sem nemendur velja: 1 af 3

Bundið áfangaval

5 af 15
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Fjöldi eininga (framhaldsskólaeininga) sem nemendur þurfa að velja: " 5 af 15

Bundið áfangaval

6 af 18
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Fjöldi eininga (framhaldsskólaeininga) sem nemendur þurfa að velja: " 6 af 18

Frjálst Val Aðrir óskilgreindir áfangar sem nemendur geta valið/metið á námsbrautinni

Lýsing: Frjálst val 25 einingar. Nemendur á leiklistasviði þurfa 10 einingar í þriðja tungumáli. Nemandi þarf að gæta þess að uppfylla reglur um skiptingu náms á hæfniþrep.

Grunnþættir og lykilhæfni Hvernig unnið er með grunnþætti og lykilhæfni

Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:
  • Sérstakur áfangi í fjármálalæsi er á öllum brautum skólans þar sem meðferð tölulegra upSérstakur áfangi í fjármálalæsi er á öllum brautum skólans þar sem meðferð tölulegra upplýsinga er þjálfuð.plýsinga er þjálfuð.
  • Ýmsir áfangar í stærðfræði, félagsvísindum og raungreinum fjalla um, túlka og nýta tölulegar upplýsingar.
  • Allir nemendur skólans taka námsáfanga þar sem mikið er lagt upp úr læsi og meðferð talna.
  • Nemendur eru markvisst þjálfaðir í notkun upplýsingatækni. Þeir safna saman tölfræðilegum upplýsingum, læra að lesa úr þeim og setja niðurstöðurnar fram á aðgengilegan máta.
Námshæfni:
  • Í skólanum er markvisst unnið að því að efla sjálfstæði nemenda í vinnubrögðum. Kennslu- og námsaðferðir eru fjölbreyttar og reyna á ýmsa hæfni. Nemendur læra að meta eigin vinnubrögð og eru þjálfaðir í námstækni ólíkra námsgreina.
  • Allir nemendur skólans hefja nám sitt í skólanum með því að taka áfanga í lífsleikni þar sem námstækni er sérstaklega kennd og þjálfuð. Þeir þjálfast í að meta eigin styrkleika og veikleika og hvernig ná má árangri með því að nýta sér þá.
Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:
  • Fjölbreytt námsmat og fjölbreyttar kennsluaðferðir hvetja nemendur til sköpunar og frumlegrar hugsunar. Kennarar eru sérstaklega hvattir til að beita fjölbreyttum kennsluaðferðum og margs konar námsmati í þeim tilgangi að ýta undir sköpun nemenda.
  • Verkefnamiðað nám færist sífellt í vöxt þar sem nemendur eru hvattir til að þróa sínar eigin leiðir til að leysa margvísleg verkefni.
  • Félagslíf nemenda sem byggist á heilbrigðri skemmtun, þjálfun í skapandi hugsun og frumlegum lausnum hefur verið einkennandi fyrir skólann. Í skólanum er starfrækt öflugt leikfélag sem setur upp metnaðarfullar sýningar þar sem byggt er á því að allir nemendur sem þess óska geta tekið þátt.
  • Nemendur skólans eiga þess kost að velja fjölbreytta námsáfanga í listum þar sem megináhersla er á sköpun og frumlega hugsun. Þetta er eitt af aðalsmerkjum skólans.
  • Nemendahópur skólans er fjölbreytt flóra með ólíka hæfileika. Þessi samsetning hópsins leiðir fram skapandi kraft, frumleika og fjölbreytileika.
Jafnrétti:
  • Jafnrétti er hluti af öllu því starfi sem fer fram í skólanum, jafnt í kennslu sem öðru starfi. Það endurspeglast í ólíkum verkefnum og samskiptum milli einstaklinga og hópa innan skólans. Sérstaklega er fjallað um jafnrétti í félagsvísindum og sögu.
  • Unnið er að jafnrétti með því að viðhafa fjölbreyttar kennsluaðferðir og fjölbreytt námsmat þar sem einstaklingurinn fær tækifæri til að njóta styrkleika sína. Jafnréttisáætlun skólans er á heimasíðu og sérstök jafnréttisnefnd er starfandi við skólann.
Menntun til sjálfbærni:
  • Í skólanum er kenndur áfangi í umhverfisfræði þar sem áherslan er á sjálfbærni og sjálfbæra hugsun. Helstu lögmál vistkerfa eru kynnt og staða manns í vistkerfi jarðar skoðuð í samhengi. Helstu umhverfisvandamál sem ógna framtíð mannkyns eru til umfjöllunar. Í verkefnum er haft að leiðarljósi að auka skilning á sameiginlegri ábyrgð manna á framtíð mannkyns á jörðinni.
  • Þessari umhverfisstefnu er fylgt eftir með því að allt sorp skólans er flokkað. Þannig er unnið að því að nemendur verði virkir og ábyrgir borgarar bæði gagnvart samfélaginu og umhverfi sínu.
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:
  • Í skólanum eru kennd erlendu tungumálin enska, danska, franska, spænska og þýska. Nemendur eru í öllum áföngum þjálfaðir í notkun tungumálsins, jafnt í einstaklingsverkefnum sem og í samskiptum við aðra nemendur. Sérstaða enskunnar er sú að allmargar námsbækur og heimildir í öðrum námsáföngum eru á enskri tungu.
  • Í tungumálanáminu ásamt námi í sögu og félagsvísindum læra nemendur um erlend samfélög í fortíð og nútíð. Heimsóknir til erlendra menningarsvæða er liður í námi nemenda og nemendur eru hvattir til að taka þátt í slíkum nemendaferðum. Skólinn á einnig í samskiptum við erlenda skóla, bæði með því að taka á móti nemendum og að heimsækja nemendur erlendis, og nýtur til þessara verkefna styrkja á borð við Comenius og NordPlus.
Heilbrigði:
  • Skólinn leggur sérstaka áherslu á heilbrigðan lífsstíl m.a. í tengslum við heilsueflandi skóla. Allir nemendur skólans taka á fyrstu önn sérstakan áfanga í lýðheilsu og geta nemendur valið sér fjölbreytta áfanga í íþróttum. Í íþróttum er unnið að því að nemendur upplifi hreyfingu sem líkamlegan og andlegan styrk til að takast á við áskoranir dagslegs lífs og auki þar með lífsgæði sín. Sérstakt markmið er að nemendur geri hreyfingu að lífsstíl.
  • Í félagsvísindum er fjallað sérstaklega um geðrænt og félagslegt heilbrigði. Í líffræði er fjallað um grunnþarfir lífvera og komið inn á tengsl milli heilbrigðis og lífhátta, þar á meðal næringar. Fjallað er um lífverur sem valda smitsjúkdómum og gildi hreinlætis. Heilbrigð sál í hraustum líkama er lykillinn að innihaldsríku og góðu lífi.
  • Rík hefð er fyrir ýmiss konar íþróttamótum, bæði innan skólans og í samvinnu við aðra skóla. Skólinn er í nánu samstarfi við íþróttafélag bæjarins með því markmiði að heilbrigður lífsstíll sé eftirsóknarverður og æskilegur í nútímasamfélagi.
  • Forvarnastarf skólans er öflugt, sérstakur forvarnafulltrúi starfar við skólann í náinni samvinnu við stjórn nemendafélagsins og félagsráðunaut. Eitt öflugasta forvarnaverkefni skólans er uppsetning söngleikja þar sem meginmarkmiðið er að allir nemendur fái tækifæri til að taka þátt og öðlist félagslegan þroska með því að takast sameiginlega á við stórt og viðamikið verkefni sem krefst þess að allir þátttakendur séu jafnir.
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
  • Skólinn leggur sérstaka áherslu á að skapandi ritun og heimildaritun séu kenndar og þjálfaðar í flestum áföngum. Sérstök áhersla er lögð á tjáningu og flutning verkefna. Í íslenskuáföngum er lögð áhersla á lestur íslenskra bókmennta þar sem íslenskt samfélag er krufið til mergjar. Mikilvægi varðveislu menningararfsins er áréttað.
  • Í félagsvísindum er sérstaklega fjallað um íslenskt samfélag, sérkenni þess og stjórnarfar.
Lýðræði og mannréttindi:
  • Lýðræði og mannréttindi eru grunnstoðir samfélagsins. Því hvetur skólinn nemendur til gagnrýnnar hugsunar. Í samfélagsfræðiáföngum er saga lýðræðis og mannréttinda kennd og skoðuð í ljósi heimsmála. Nemendur eru þjálfaðir í lýðræðislegum vinnubrögðum og samvinnu, þeir eru þjálfaðir í að tjá eigin skoðanir, færa rök fyrir máli sínu og hlusta á rök annarra.
  • Í skólanum er öflugt nemendafélag sem kemur að mörgum ákvörðunum í málefnum skólans. Má þar nefna að fulltrúar nemenda sitja í skólaráði og skólanefnd og leggja þannig sitt af mörkum við stjórnun skólans. Leitað er til hins almenna nemanda í ýmsum málum, m.a. eru lagðar fyrir kennslukannanir á hverri önn þar sem nemendur geta tjáð sig um skólastarfið. Opnir fundir eru haldnir einu sinni á önn þar sem stjórnendur skólans og nemendafélagsins sitja fyrir svörum almennra nemenda.