Námsbraut
Titill brautar: | Námsleið: | Námslok: |
Starfsbraut (Staðfestingarnúmer 80) 15-80-1-12 | starfsbraut | hæfniþrep 1 |
Lýsing: | Markmið starfsbrautar er að undirbúa nemendur undir lífið og þátttöku í atvinnulífinu eða frekara nám. Nemendahópurinn er breiður og námið er einstaklingsmiðað. Leitast er við að efla færni nemenda í íslensku, efla siðferðisvitund þeirra og ábyrgðarkennd, víðsýni, frumkvæði, sjálfstraust svo og umburðarlyndi. Einnig er leitast við að þjálfa nemendur í sjálfstæðum vinnubrögðum, jafnrétti og gagnrýninni hugsun, þeim kennt að njóta menningarlegra verðmæta og þeir hvattir til þekkingarleitar. |
Grunnupplýsingar Meginatriði brautarlýsingar
Inntökuskilyrði: | Viðurkennd greiningargögn um fötlun skv. lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992. |
Skipulag: | Nám á starfsbraut er fjögur ár en þar sem námið er einstaklingsmiðað geta áherslur og þátttaka í áföngum verið mismunandi á tímabilinu. Námið á brautinni er blanda af bóklegu og verklegu námi. Náminu er skipt í kjarna og val og leitast er við að hafa námið sem fjölbreyttast og þverfaglegt. Í kjarna eru skylduáfangar brautarinnar. Valáfangar taka mið af því sem almennt er í boði í skólanum hverju sinni og ásamt því er reynt að koma til móts við áhuga, þarfir og óskir nemenda með starfsbrautaráföngum s.s á sviði verknáms, matreiðslu, listnáms, hönnunar, íþrótta, tungumála og upplýsingatækni. Nemendur taka valáfanga jafnt og þétt í náminu samhliða kjarnaáföngum. Allir nemendur hafa umsjónarkennara sem styðja þá og halda utan um námið með nemandanum og sjá um miðlun upplýsinga til og frá skóla. Áhersla er lögð á að styrkja stöðu nemenda á öllum sviðum, námslega, félagslega og stöðu nemenda á vinnumarkaði. Einnig er lögð áhersla á að efla samskiptahæfni, sjálfstraust og sjálfsmynd nemandans. Að námi loknu eiga nemendur að hafa fengið almennan undirbúning fyrir lífið og í grunnþáttum menntunar. Þeir eiga einnig að hafa öðlast starfsreynslu á vinnumarkaði. Námið er á fyrsta þrepi, þ.e. almenn og hagnýt þekking sem miðast við stöðu hvers og eins. Möguleiki er á að nemendur taki áfanga á öðrum námsþrepum og námsbrautum, uppfylli þeir skilyrði þar um. |
Námsmat | Lögð er áhersla á leiðsagnarmat og símat sem gefur nemendum uppbyggilega og hvetjandi leiðsögn og metur vinnuframlag þeirra jafnt og þétt yfir námstímann. Námsmat er fjölbreytt og aðferðir taka mið af fjölbreyttum kennsluháttum, námsmarkmiðum og hæfni nemenda. Námsmat á brautinni er fólgið í símati og lokaprófi eða eingöngu símati. Nánari tilhögun námsmats s.s. skiladagar verkefna og vægi kemur fram í námsmatsreglum skólans. |
Starfsnám: | Starfsnám fer fram innan eða utan skólans allt eftir einstaklingsþörfum nemenda. Allir nemendur fara í mismunandi og fjölbreytta starfsnámsáfanga. Þeir kynnast vinnumarkaðinum, starfsheitum, réttindum og skyldum, ýmis konar vinnustöðum og mikilvægi góðra samskipta á vinnustað. Lögð er áhersla á að finna út hvar styrkleikar og áhugasvið nemenda liggja, ásamt því að efla jákvæðni og áhuga þeirra í garð atvinnulífsins. Markmið náms og þjálfunar á vinnustað er að kynna nemendum möguleika á störfum í nærumhverfi sínu og gera þá hæfari til að takast á við almenn störf á vinnumarkaði. Mikilvægt er að nemendur læri góð vinnubrögð, um öryggismál, um mikilvægi mætingar og vinnu í hópi. Jafnframt fá nemendur reynslu og yfirsýn sem nýtist þeim í framtíðinni. Vinna nemenda er skipulögð í samráði við vinnuveitendur en er undir eftirliti kennara. Námið er metið í samráði við vinnuveitendur og umsjónarmenn námsins frá skólans hendi og einkum er leitast við að meta þætti á borð við ástundun, sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði. Viðverutími og stuðningur við nemendur er einstaklingsmiðaður. |
Reglur um námsframvindu: | Brautskráning er óháð fjölda eininga sem nemandi hefur lokið. Námið er einstaklingsmiðað og því geta áherslur og þátttaka í áföngum verið mismunandi á tímabilinu. |
Hæfniviðmið: |
Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...
|
Einingafjöldi Fjöldi framhaldsskólaeininga sem þarf til að útskrifast af brautinni
240 fein. |
Kjarni Skylduáfangar brautarinnar
Hlutfall eininga á þrepum í kjarna
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
Frjálst Val Aðrir óskilgreindir áfangar sem nemendur geta valið/metið á námsbrautinni
Lýsing: | Í frjálsu vali eru þeir valáfangar sem eru í boði á starfsbraut. Nemendur velja valáfanga brautarinnar og annað námsframboð skólans eftir því sem við á. Fjöldi áfanga og einingafjöldi sem nemendur velja er einstaklingsbundinn. Markmiðið er að bjóða nemendum upp á fjölbreytt og einstaklingsmiðað nám. Nemendur geta valið hvern valáfanga oftar en einu sinni. |