Hönnunar-og markaðsbraut (Staðfestingarnúmer 78) |
1478517105.45 |
3 |
4fb2704e874d802e5451c0bb |
Hönnunar-og markaðsbraut (Staðfestingarnúmer 78) 15-78-3-7 |
stúdent |
hæfniþrep 3 |
Markmið brautarinnar er að nemendur öðlist góða almenna þekkingu á sviði hönnunar- og markaðsfræði og að nemendur geti greint fjölbreytileika hönnunar í atvinnulífinu. Annars vegar með verklegri þjálfun, með áherslu á þátt nýsköpunar í hönnun, og hins vegar með bóklegri þjálfun er varðar lögmál markaðarins. Nemendur öðlast markaðslega færni og innsýn í rekstur fyrirtækja í góðri tengingu við atvinnulífið. Einnig eiga nemendur að getað miðlað hugmyndum og útskýrt vinnuferli og breytt hugmynd í afurð og búa yfir frumkvæði, skapandi hugsun og sjálfstæði í vinnubrögðum. Í náminu er lögð áhersla á góða tengingu við atvinnulífið. Náminu lýkur með stúdentsprófi. Markmiðið með náminu er að undirbúa nemendur undir áframhaldandi nám og störf við hinar fjölbreyttu greinar hönnunar í atvinnulífinu. Brautin er góður undirbúningur fyrir frekara nám í hönnun og markaðsgreinum. Einnig er brautin góður undanfari fyrir nám í listaháskóla, nám í hugvísindum og viðskiptafræði. |
Grunnupplýsingar
Meginatriði brautarlýsingar
Ekki er um eiginleg inntökuskilyrði að ræða á brautina. Nemendur raðast í kjarnagreinum eftir skólaeinkunn. Þessar kjarnagreinar eru danska, enska, íslenska og stærðfræði. Til að fara í framhaldsskólaáfanga í þessum kjarnagreinum þarf skólaeinkunnina sjö (7) eða B. Bókstafseinkunnin er háð endanlegri útfærslu grunnskólans á bókstafskerfinu. |
Námið á hönnunar- og markaðsbraut er bæði verklegt og bóklegt. Kennsluaðferðir eru fjölbreyttar, t.d. fyrirlestrar,samvinnunám, leitarnám, verkefnamiðað nám, ritun og tjáning. Stór hluti af náminu fer fram í verkefnastofum þar sem áherslan er á samvinnunám og sjálfstæð vinnubrögð nemenda um leið og nemandinn er þjálfaður í notkun nýjustu upplýsingatækni. Einnig fer mikill hluti af náminu fram í listgreinastofum skólans. |
Námsmat er fjölbreytt og felst meðal annars í ritgerðum og ýmsum verkefnum, prófum, jafningjamati og sjálfsmati. Að lokum vinna nemendur lokaverkefni þar sem þeir markaðsetja sína eigin vörur og endar það ferli með sýningu. |
|
Nemandi þarf að ljúka 202 einingum til að ljúka stúdentsprófi. Námstíminn er að meðaltali 6-7 annir. Lágmarkseinkunn er 5,0 í öllum áföngum. |
Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...
- mynda góð tengsl milli atvinnulífs og skóla og að þau séu fjölbreytileg og í takt við nýjungar í atvinnulífinu.
- hafa góða markaðslega færni og innsýn í rekstur fyrirtækja og geta metið mikilvægi verkefna.
- vita hvernig hönnun og markaðsgreinar tengjast atvinnusköpun og samfélagsþróun.
- geta greint fjölbreytileika hönnunar í atvinnulífinu.
- geta tjáð sig í gegnum ýmsa miðla, taka þátt í rökræðum og öðlast leikni/færni í samskiptum og samvinnu.
- þekkja meginstrauma í þróun og menningu hönnunar í fortíð og nútíð.
- geta nýtt sér sköpunarkraft sinn á margvíslegan hátt í lífi og starfi.
- virkja frumkvæði, skapandi hugsun og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- geta miðlað hugmyndum og útskýrt vinnuferli og breytt hugmynd í afurð.
- stunda frekara nám í hönnun og markaðsgreinum.
|
Einingafjöldi
Fjöldi framhaldsskólaeininga sem þarf til að útskrifast af brautinni
Kjarni
Skylduáfangar brautarinnar
Áfangar:
|
Kjarni brautar
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Hlutfall eininga á þrepum í kjarna
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
1 af 3
|
Áfangar:
|
Þriðja tungumál þýska
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Áfangar:
|
Þriðja tungumál spænska
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Áfangar:
|
Þriðja tungumál franska
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
10 af 15
|
|
10 af 15
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
6 af 18
|
|
6 af 18
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Frjálst Val
Aðrir óskilgreindir áfangar sem nemendur geta valið/metið á námsbrautinni
Frjálst val 53 einingar þar af 25 einingar í list-og verkgreinum.
Nemandi þarf að gæta þess að uppfylla reglur um skiptingu náms á hæfniþrep. |