Um Námskrá.is

Í mennta- og menningamálaráðuneytinu er nú unnið að undirbúningi nýrrar aðalnámskrár fyrir leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla á grundvelli laga um þessi skólastig frá 2008. Aðalnámskrá byggir á menntalögum hverju sinni og útfærir stefnu sem löggjafinn markar.

Í almennum hluta aðalnámskrár er kveðið á um hlutverk, markmið og fyrirkomulag skólastarfs. Í námskrám leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla er lýst nánar hlutverki hvers skólastigs og séráherslum á hverju þeirra. Aðalnámskrá er rammi um skólastarfið og leiðarljós fyrir nemendur og forráðamenn þeirra, kennara, aðra starfsmenn skólanna og skólastjórnendur, fræðsluyfirvöld í sveitarfélögum og aðra starfsmenn í menntakerfinu.

Lög gera ráð fyrir að sveitarfélög sem rekstaraðilar skóla birti skólastefnu sína fyrir leik- og grunnskóla. Skólum á öllum skólastigum ber, samkv. lögum, að gefa út skólanámsskrár. Í skólanámskrá eru áherslur aðalnámskrár útfærðar í samræmi við skólastefnu rekstraraðila og áherslur í hverju tilviki.

Þessu vefsvæði er ætlað að halda utan um allar upplýsingar og vinnu við afmörkun og þróun komandi námskráa.

Deildu þinni skoðun

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>