Nemendur lesa skáldsögur, smásögur, ljóð og alls kyns texta 20. og 21. aldar. Þeir verða áfram þjálfaðir í að gera grein fyrir innihaldi texta og formi og tengja þá við bókmenntastefnur og hugtök jafnframt því að setja textana í sögulegt samhengi.
Ritun og tjáning: Nemendur vinna fræðilegar bókmenntaritgerðir og og ýmsa styttri texta þar sem þeir geta nýtt þekkingu sína og sköpunargáfur. Ennfremur þjálfast nemendur í munnlegri tjáningu með því að flytja ýmiss konar texta sem þeir semja.
ÍSLE2BM05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Flokka og greina helstu bókmenntaverk sem samin hafa verið hér á landi á 20. og 21. öld
greina hugarfar og tíðaranda tímabilsins
kunna skil á helstu bókmenntahugtökum
kunna skil á reglum um skráningu og meðferð heimilda í ritgerðasmíð
lesa ýmiss konar texta frá tímabilinu sér til gangs og gamans
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skrifa heimildaritgerðir og styttri texta
kynna verkefni sín munnlega
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
túlka, greina og beita gagnrýninni hugsun við lestur ýmiss konar texta frá tímabilinu ...sem er metið með... með verkefnum, ritgerðum og prófum
greina samfélagslegar skírskotanir og dulinn boðskap í textum
tjá sig á málefnalegan hátt um efni texta, tilfinningar og sjónarmið sem þeir vekja ...sem er metið með... með munnlegum og skriflegum verkefnum
rökstyðja eigin skoðanir og komast að niðurstöðu ...sem er metið með... með ritgerðum og munnlegum verkefnum
beita skýru og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
greina mismunandi sjónarmið og skilja lykilhugtök bókmenntafræðinnar ...sem er metið með... með verkefnum, ritgerðum og prófum