Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1388749880.52

    Hreyfifræði, bein og vöðvar
    ÍÞRF2BH05
    3
    íþróttafræði
    bein og vöðvar, hreyfifræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Áfanginn er bóklegur og verklegur og fjallað er um starfsemi mannslíkamans með áherslu á bein og vöðva. Sérstök áhersla verður lögð á þau líffæri og líffærakerfi sem tengjast hreyfingum mannslíkamans. Fjallað er um bein, bönd og liðamót, liðfleti og liðpoka. Einnig um hreyfingu í liðamótum og stefnu hreyfinga. Fjallað er um einstaka vöðva, upptök þeirra, festu og starf. Farið verður í blóðrás og öndunarfæri. Fjallað er um hugtök og grundvallaratriði hreyfifræðinnar og komið inn á tækni íþróttagreina. Áfanginn byggir að stórum hluta á starfrænni hreyfifræði, þ.e. hvernig vöðvar, bein og liðamót líkamans koma við sögu í fjölbreyttum hreyfingum. Nemendur gera æfingar með og án áhalda til að auka skilning sinn á því hvernig ákveðnar hreyfingar myndast í íþróttum. Enn fremur er fjallað um rétta lyftitækni, starfsstellingar og hreyfingar við vinnu.
    ÍÞRF1ÞÞ06
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu vöðvum og vöðvahópum líkamans
    • hlutverki beinagrindar og hreyfingu helstu liðamóta
    • beinum, böndum og liðamótum líkamans
    • helstu lögmálum hreyfifræðinnar
    • hjarta og æðakerfum líkamans
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • þekkja helstu vöðva líkamans, upptök þeirra og festu
    • þekkja helstu bein líkamans, heiti þeirra og staðsetningu
    • þekkja liðgerðir og hreyfingar þeirra
    • vinna með helstu hreyfifræðilögmálin
    • beita réttri lyftitækni
    • nota réttar starfsstellingar
    • þekkja afkasta aukandi/hamlandi þætti varðandi hjarta og æða kerfi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta greint hreyfingu helstu vöðva líkamans út frá upptöku og festu
    • geta grein frá staðsetningu og heita helstu beina líkamans
    • geta notað hreyfifræðilögmál til að skýra út ýmsar hreyfingar
    • geta greint vöðvavinnu í ákveðnum æfingum
    • geta greint mun á réttri og rangri líkamsbeitinu
    • geta grein frá helstu þáttum varðandi hjarta og æðakerfið
    Tíma og heimaverkefni 60%, Próf 40% Nemendur verða að vera með lágmarks einkunn 4,5 úr prófaþætti til að þættir námsmats gildi.