Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1410283044.59

    Stærðfræði með áherslu á almenna stærðfræði
    STÆR1GS03
    23
    stærðfræði
    grunnaðgerðir
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með útreikninga og stærðfræðileg hugtök sem nýtast nemendum í daglegu lífi. Dæmi um viðfangsefni eru tölur, samlagning, frádráttur, margföldun og deiling. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Undirstöðuatriðum í reikningsaðgerðum
    • Mikilvægi stærðfræðinnar í daglegu lífi
    • Notkunarmöguleikum vasareiknis
    • Finna mismunandi aðferðir og lausnir út frá gefnum upplýsingum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Nota vasareikni
    • Nota algeng stærðfræðitákn
    • Finna mismunandi aðferðir og lausnir út frá gefnum upplýsingum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Skrá lausnir sínar á skipulagðan hátt
    • Fylgja fyrirmælum sem gefin eru
    • Beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna sem tengjast námsefninu
    Námsmatið er einstaklingsmiðað, s.s. leiðsagnarmat, jafningjamat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum, mæting, sjálfsmat, ástundun og lokapróf. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.