Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1412683616.87

    Tölvufræði á fyrsta námsári
    UPPL1RT02
    7
    tölvunotkun, upplýsingatækni
    ritvinnsla, töflureiknir, vefsíðugerð
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Uppsetning texta með ritvinnsluhugbúnaði og útvinnsla gagna með töflureikni. Áhersla á tölfræðiúrvinnslu. Einföld vefsíðugerð.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • undirstöðuatriðum í uppsetningu texta með ritvinnsluhugbúnaði með stillingu efnisgreina, dálkastillum og töflum
    • uppsetningu stærðfræðitákna með jöfnuritli
    • undirstöðuatriðum í glærugerð
    • undirstöðuatriðum í uppsetningu gagna í töflureikni
    • einföldum reikningum í töflureikni
    • einföldum föllum í töflureikni
    • grunnhugtökum tölfræðinnar
    • einföldum HTML-kóða
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • frágangi texta í ritvinnsluhugbúnaði
    • uppsetningu á glærusýningu
    • reikningum og uppsetningu gagna með töflureikni
    • úrvinnslu gagna
    • að setja upp einfaldar vefsíður
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • setja texta og upplýsingar skilmerkilega fram
    • beita skipulegum aðferðum við lausnir verkefna á sviði upplýsingatækni
    • túlka myndræna framsetningu á gögnum og greina hvenær slík framsetning er æskileg
    • vera læs á mál tölvufræðinnar
    Regluleg skil verkefna, frammistaða nemandans í tímum, vinnubrögð við heimanámi, stór skilaverkefni unnin í hópum, hlutapróf