Lögð er áhersla á að nemendur vinni með fjölbreytt efni og hafi val um margvísleg verkefni. Nemendur þjálfast í að tileinka sér aukinn orðaforða, verða læsir á flóknari texta en áður, tjá hugsun sína skýrt í ræðu og riti og rökstyðja skoðanir sínar. Áhersla er lögð á vandlegan lestur texta með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Nemendur vinna einstaklingsverkefni þar sem áherslan er á að nemendur auki við sig sérstaklega orðaforða sem tengist braut þeirra. Þar að auki munu nemendur skoða valin bókmenntaverk út frá sjónarhorni félagsvísinda og náttúruvísinda. Nemendur vinna sjálfstætt að viðameiri verkefnum svo sem kynningum og stærri ritunarverkefnum sem fela í sér öflun upplýsinga á bókasafni, Netinu sem og margmiðlunarefni.
ENSK2RR05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu menningarsvæðum þar sem tungumálið er notað sem móðurmál eða fyrsta mál
þverfaglegum orðaforða til markvissrar notkunar í námi á háskólastigi
rithefðum sem við eiga í textasmíð, m.a. um inngang með efnisyrðingu, meginmáli með vel afmörkuðum efnisgreinum og niðurlagi
mismunandi afstöðu og túlkun bókmenntahöfunda og dýpri merkingu texta
stjórnmálum, fjölmiðlum og sögu og áhrifum þeirra á þjóðfélagsmótun í þeim löndum þar sem tungumálið er talað
menningu þjóða þar sem tungumálið er talað sem og eigin menningu í alþjóðlegu samhengi, uppruna tungumálsins og útbreiðslu, og skyldleika þess við íslenskt mál
orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða starfi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa sér til fræðslu og/eða ánægju texta sem gera miklar kröfur til lesandans, bæði hvað varðar orðaforða, uppbyggingu, myndmál og stílbrögð
greina sögulegt, félagslegt, menningarlegt eða pólitískt samhengi í texta
beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð texta eða viðfangsefnis
tjá sig munnlega skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér
skilja sér til gagns þegar fjallað er um flókið efni
að skilja vel sérhæfða texta á sviði sem hann þekkir
að skilja almennt talað mál, jafnvel þar sem frásögnin er ekki sett skipulega fram,
nota tungumálið á sveigjanlegan og árangursríkan hátt í samræðum og geta nýtt nýjan orðaforða
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
beita málinu af lipurð og kunnáttu til að geta tekið fullan þátt í umræðum og rökræðum þar sem fjallað er um persónuleg, menningarleg, félagsleg og fjölmenningarleg efni
flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð, draga fram aðalatriði og rökstyðja mál sitt nokkuð nákvæmlega með dæmum og bregðast við fyrirspurnum
skrifa fræðilegan texta með röksemdafærslu þar sem fram koma rök með og á móti og þau vegin og metin
beita rithefðum sem við eiga í textasmíð, m.a. um inngang með efnisyrðingu, meginmáli með vel afmörkuðum efnisgreinum og niðurlagi
skilja án vandkvæða megininntak erinda og rökræðna, jafnvel um tiltölulega flókið efni, ef hann þekkir vel til þess
lesa texta þar sem ákveðin viðhorf eða skoðanir eru kynnt, átta sig á tilgangi og afstöðu textahöfundar og bregðast við eða tjá skoðanir sínar munnlega eða skriflega um efni þeirra, lesa á milli línanna, átta sig á dýpri merkingu í texta
leysa ýmis mál sem upp koma í samskiptum og haga orðum sínum í samræmi við aðstæður, taka þátt í skoðanaskiptum, færa rök fyrir máli sínu og svara mótbárum og gagnrökum á viðeigandi hátt
eiga frumkvæði í samræðum og bregðast við óvæntum spurningum og athugasemdum, tjá sig á skýran og áheyrilegan hátt og beita tungumálinu af tiltölulega mikilli nákvæmni við margs konar aðstæður
tjá tilfinningar, nota hugarflugið og beita stílbrögðum, t.d. myndmáli og líkingamáli
beita rithefðum sem við eiga í textasmíð, m.a. um inngang með efnisyrðingu, meginmáli með vel afmörkuðum efnisgreinum og niðurlagi
Símat, hlutapróf, verkefnavinna, ferilmappa, ritgerð, ritgerðarspurningar og munnlegt próf.