Kynning á helstu rannsóknastofnunum á Íslandi, aðferðum við öflun heimilda af viðurkenndum vísindamiðlum. Helstu aðferðir til að meta áreiðanleika heimilda og þjálfun í að skrifa heimildaritgerð og skrá heimildir samkvæmt reglum og halda fyrirlestur byggðan á ritgerðinni.
Minnst 30 einingar í náttúrufræðigreinum og þar af einn áfanga á 3. þrepi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu rannsóknastofnunum á Íslandi.
vinnuaðferðum við heimildaöflun af viðurkenndum vísindamiðlum.
aðferðum til að meta áreiðanleika heimilda.
ritun heimildaritgerðar og meðferð heimilda.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skrifa heimildaritgerð.
temja sér viðurkenndar reglur um skráningu og tilvísanir í heimildir.
halda fyrirlestur.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna heimildaritgerð frá grunni að fullunninni afurð.